Hvar er stóra planið? – Forsætisráðherra svarar gagnrýni
Hún benti á að stærstur hluti þeirra sem fá slíkar greiðslur sé fólk sem hafi takmarkaða möguleika á að bæta stöðu sína, svo sem öryrkjar eða einstaklingar með litlar lífeyristekjur. „Ég hef ekki áhyggjur af því að þessi hópur fari fram úr lágmarkslaunum,“ sagði hún og bætti því við að stjórnvöld gætu alltaf gripið inn í ef ójafnvægi myndast.
Gagnrýni á efnahagsstjórn
Frosti spurði hvort stjórnvöld hefðu í raun stjórn á efnahagsmálum.
Kristrún viðurkenndi að áhyggjur væru til staðar um stöðu ríkisfjármála, en lagði áherslu á að ríkisstjórnin væri að vinna að fjölbreyttum aðgerðum. Hún hafnaði því að núverandi stefna væri tilviljanakennd eða að skýra sýn skorti hjá stjórninni.
ESB ekki forgangsmál en áfram á borðinu
Eitt helsta viðfangsefnið í viðtalinu var afstaða ríkisstjórnarinnar til Evrópusambandsins. Frosti benti á að Kristrún hefði fyrir kosningar sagt að málið væri ekki á dagskrá.
Kristrún sagði að afstaða hennar hefði ekki breyst í grunninn. Hún hafi alltaf verið jákvæð gagnvart aðildarviðræðum, en málið sé ekki forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar. Hún staðfesti þó að stefnt sé að þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi viðræður.
„Þetta er ekki allsherjar lausn á efnahagsvandanum,“ sagði hún og lagði áherslu á að tímasetning skipti máli.
Segir stöðuna hafa breyst eftir að hún tók við embætti
Kristrún bendir á að eftir að hún tók við sem forsætisráðherra hafi staða alþjóðamál gjörbreyst á skömmum tíma.
Hún sagði að samskipti og aðgerðir annarra ríkja hefðu bein áhrif á Ísland og þar með ákvarðanir stjórnvalda og að þetta skýri að hluta til hvers vegna ákveðin mál, eins og ESB, hafi komið fyrr inn í umræðuna.
Bandaríkin enn lykilsamstarfsaðili
Frosti spurði einnig af hverju ríkisstjórnin horfi frekar til Evrópu en Bandaríkjanna. Kristrún hafnaði þessu og sagði varnarsamning Íslands við Bandaríkin áfram mikilvægan og sagði að samstarf Íslands við Evrópu væri umfangsmikið í gegnum EES og Norðurlandasamstarf, en samskipti við Bandaríkin væru einfaldlega á öðrum forsendum.
„Við erum ekki stórþjóð og höfum ekki alltaf beinan aðgang að forseta Bandaríkjanna,“ sagði hún og bætti við að samskiptin væru þó áfram sterk.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.