Áður en haldið er af stað í ferð frá landinu er ráð að kynna sér hvaða mat er best að taka með sér í flug. Þá er sérstaklega algengt að fólk með lítil börn verði að hafa eitthvað snarl meðan á ferðalaginu stendur. Aðrir eru lítt hrifnir af matnum sem flugfélög bjóða upp á um borð.
Þá vakna gjarnan upp spurningar um hvaða mat sé í raun leyfilegt að taka með í flug. Hin alræmda 100 ml regla fyrir vökva hefur víða verið rýmkuð, aðallega í Bretlandi og í löndum innan Evrópusambandsins. Á sumum flugvöllum má nú hafa allt að tvo lítra af vökva í handfarangri. Það er hins vegar alltaf mikilvægt að athuga þessi mál áður en haldið er af stað.
Almenna reglan er sú að fastur matur er leyfður í handfarangri. Þar undir falla meðal annars samlokur, ávextir, snakk og forpakkaður matur. Einnig má taka með mat sem er að hluta til fljótandi eins og barnamat og hunang.
Ef flugvöllurinn sem ferðast er frá fylgir 100 ml reglunni verða slík matvæli að vera í ílátum sem rúma ekki meira en 100 ml. Sama á við um karrírétti, pottrétti og annan mat með miklum vökva.
Best er að forðast mjög sósuríkan eða súpukenndan heimagerðan mat. Slíkur matur getur bæði talist vökvi og er líklegri til að leka. Það er heldur ekki málið að vera óvinsæli farþeginn með karrípottrétt sem angar um alla flugvél.
Ef þú treystir þér í að mæta með eitthvað æðislegt og heimagert er best að geyma það í gegnsæjum ílátum, loftþéttum umbúðum og endurlokanlegum nestisboxum. Gegnsæ ílát geta einnig flýtt fyrir öryggisskoðun.
Hvað ætti að skilja eftir heima?
Það er ekki ráðlegt að taka frosinn mat, kæli- eða íspoka og samlokur vafðar í álpappír. Álpappír getur virkjað viðvörunarkerfi í öryggisleit og tafið ferðina.
Mjúkir ostar eins og Brie, Camembert og blámygluostar geta verið flokkaðir sem vökvar í öryggisleit. Auk þess hafa mörg lönd sérstakar reglur um innflutning á kjöti, mjólkurvörum, fiski, dýraafurðum, grænmeti og hnetum og fræjum.
Því er mikilvægt að kynna sér reglur áfangastaðarins áður en lagt er af stað.
Barnamatur og brjóstamjólk
Samkvæmt mörgum opinberum leiðbeiningum eru ekki takmörk fyrir brjóstamjólk og barnamat fyrir barnafólk. Svokallaðar skvísur hafa verið vinsælar hjá foreldrum ungra barna.
Brjóstamjólk þarf þó að vera í ílátum sem rúma að hámarki tvo lítra.