Hundruð manna mótmæltu morðinu á Henry Nowak og viðbrögðum lögreglu í Southampton í nótt, þrátt fyrir óskir fjölskyldu hans um að morðið yrði ekki notað til að ala á sundrungu.
Nowak, sem var 18 ára gamall, var myrtur í desember í fyrra í heimaborg sinni Southampton.
Árásarmaðurinn er 23 ára og stakk Nowak með hnífi með 21 sentimetra löngu blaði. Árásarmaðurinn var með túrban, eða vefjarhött, um höfuðið og sagði við lögreglu að Nowak hefði sýnt sér kynþáttahatur með því að rífa af sér höfuðfatið, sem reyndist lygi. Hann var dæmdur til 21 árs fangelsisvistar í gær.
Við réttarhöldin komu fram áður óbirtar upptökur af morðinu og viðbrögðum lögreglu. Kom þá í ljós að lögreglumenn handtóku Nowak eftir árásina, meðan hann var í dauðateygjunum, vegna ásakana árásarmannsins um kynþáttahatur.
Lögreglumaður heyrist jafnframt spyrja Nowak hvar hann hafi verið stunginn og segjast efast um að svo hafi verið.
Eftir fangelsisdóminn í gær fordæmdi Mark Nowak, faðir Henry Nowaks, „ómannúðlega og niðrandi“ meðferð lögreglu, en bætti við: „Við viljum ekki að dauði hans sé notaður til að auka á sundrungu, hatur og spennu. Við viljum að saga hans verði til þess að gera strætin öruggari fyrir okkur öll.“
Þessi ummæli hafa þó ekki sefað reiði mótmælenda, þar á meðal þjóðernissinnans Tommy Robinson, sem sakar lögreglu um kerfisbundinn rasisma í garð hvítra. „Ef Henry hefði ekki verið hvítur hefði hann ekki verið handjárnaður,“ segir hann.