Elsku Embla
Þann 7. júní verða fimm ár liðin frá fráfalli Emblu Arnars Katrínardóttur. Andlát hennar var harmafregn fyrir samfélagið, en fjölskyldan sat eftir með sorgina. Löngu áður en Embla fékk greiningu var fjölskyldunni orðið ljóst að hún væri orðin alvarlega veik, en vegna þess hve þögul veikindin voru tók tíma að fá áheyrn. Jafnvel þá skorti skilning á stöðu barnsins, sem svipti sig lífi og var jörðuð á fimmtán ára afmælisdaginn sinn.
Guðrún Katrín Bryndísardóttir og Arnar Guðmundsson horfðu björtum augum til framtíðar, þau voru bæði í mikilvægum störfum, að gera upp draumahúsið og dugleg að ferðast með dæturnar, draga þær með á söfn og leiksýningar. Systurnar, Agla og Embla, voru nánar vinkonur, virkar í tómstundum og námi. Faðir þeirra sagði sögur og móðir þeirra sló á létta strengi. Á morgnana vakti hún þær með heitum kaffibolla og mætti þeim með faðmlagi þegar þær komu á fætur. Um helgar voru bakaðar pönnukökur. „Vá, hvað ég var hamingjusöm. Nánast með samviskubit yfir að hafa allt til alls og allt sem ég gat óskað mér,“ skrifaði Katrín síðar, í dagbók sem hún hélt eftir fráfall dóttur sinnar.
Nemendum beint í kirkjuna
Vorið 2021 voru þemadagar í Hagaskóla. Síðustu skóladögum annarinnar var að ljúka og nemendur mættu seinna en vanalega, fullir tilhlökkunar fyrir skrúðgöngu niður í bæ. En þegar þeir mættu lá eitthvað í loftinu, …