Hugleiðingar um vestræna menningu

Hugleiðingar um vestræna menningu

Hugleiðingar um vestræna menningu

Hugleiðingar um vestræna menningu

Miriam Petra Óm­ars­dótt­ir Awad velt­ir fyr­ir sér hvernig hug­mynd­in um „vest­ræna menn­ingu“ mót­ar sýn okk­ar á ann­að fólk.

Þegar ég var yngri lenti ég oft í því að fólk spurði mig mjög leiðandi spurninga um egypska hluta fjölskyldunnar minnar. Með spurningunum var gefið til kynna að þau hlytu að vera afturhaldssöm, ógnandi í minn garð eða allar konurnar í fjölskyldunni væru kúgaðar. Þetta lét fólk í ljós án þess að vita nokkurn skapaðan hlut um þau, annað en hvaðan þau kæmu og mér fannst fólk ekki vera að spyrja til þess að læra um þau, heldur frekar til þess að styrkja sína eigin fordóma. Oftar en ekki svaraði ég því að „þau væru sko mjög vestræn“ til að ná, í fljótu bragði, að mála upp jákvæða mynd af þeim.

Það sem ég meinti samt með því var bara að þau eru bara ótrúlega gott fólk sem uppfyllir enga af þessum fordómafullu staðalímyndum, en jafnvel í mínum huga var vestrænt orðið að mælikvarða á það sem er gott og eðlilegt. Með árunum hef ég mikið velt þessari orðanotkun fyrir mér.

Evrópa er stórt svæði með marga ólíka menningarhópa og tungumál. Meira að segja innan hennar eru svæði sem Evrópubúar sjálfir flokka í norður, suður, austur og vestur og tengja síðan jákvæða og neikvæða eiginleika við, svo úr verður ákveðið stigveldi.

Í daglegu tali á hugtakið vestræn menning síðan ekki einungis við um Evrópu. Í langan tíma hafa Bandaríkin verið einhver mælikvarði eða útgangspunktur - eða sjálfskipaður kyndilberi - vestrænnar menningar. Vissulega spratt ríkjandi menning Bandaríkjanna upp úr þeirri evrópsku menningu sem landtökufólk flutti með sér til „nýja“ heimsins.

Heimurinn var að vísu ekki nýr og þar var fjölbreytt menning fyrir, sem var að mestu þurrkuð út með ofstopi. Fleira fólk en bara Evrópubúar fluttu síðan, eða voru nauðungarflutt til Bandaríkjanna, og með þeim kom líka menning. Hin aðflutta menning var því alls ekki einsleit og Bandaríkin eru einhver mesti suðupottur heimsins, þótt svo að ein ákveðin birtingarmynd menningar hafi orðið ríkjandi sem skilgreining á því sem telst bandarísk menning í hugum fólks á Vesturlöndum.

En bandarísk og evrópsk menning er langt frá því að vera sami hluturinn. Samt lítum við svo á að hér sé um að ræða eitthvað sem hvoru tveggja getur fallið undir vestræna menningu. Ef við ætlum að halda okkur við landfræðilegar skilgreiningar, þá hlýtur bandarísk menning að vera vest-vestræn menning miðað við stöðu þeirra gagnvart Evrópu. Eða ef bandarísk menning er vestræn menning, hlýtur þá ekki sú evrópska að vera austræn, m.v. landfræðilega legu heimsálfanna?

Og hvað með Ástralíu og Nýja-Sjáland? Í hugum fólks tilheyra þau líka hinum vestræna menningarheim en landfræðilega eru þau bara vestur af Kyrrahafinu og þeim eyjum sem þar eru. Skilningurinn er væntanlega ekki lengur landfræðilegur, heldur huglægur

Ef við skoðum aðeins evrópska menningu og berum saman finnska menningu og spænska menningu, eða íslenska menningu og gríska menningu, þá held ég að það sé auðvelt að sjá hversu ólík þessi lönd geta verið menningarlega. Samt finnst okkur ekkert að því að flokka þessi lönd öll sem vestræn. Það er margt í menningu landanna við Miðjarðarhafið sem er ekki ósvipað menningu nágrannaríkja þeirra sunnan megin við hafið. Grikkir og Spánverjar eiga eflaust, um margt, meira sameiginlegt með nágrönnum sínum í Vestur-Asíu eða Norður-Afríku en með okkur Íslendingum eða Finnum.

Við tökum því samt sem sjálfgefnum hlut að þarna á milli sé ósýnileg lína sem gerir löndin norðanmegin línunnar betri, siðmenntaðri, en hin. Þannig flokkum við þessi evrópsku lönd undir sama hatt. Að minnsta kosti þegar það hentar okkur að flokka okkur saman, andspænis restinni af heiminum. Með þessari skilgreiningu málum við allt annað einhvern veginn verra, óæðra, ósiðmenntað. Edward Said hefur fyrir löngu síðan skilgreint þetta í bók sinni Orientalism, og ég ætla ekki að endursegja bókina hans í þessum vangaveltum mínum.

Talandi um Grikkland, þá hefur hin forn-gríska menning lengi verið álitin hornsteinn vestrænnar menningar en þekkingin frá þessum forna menningarheim barst okkur í gegnum þýðingar úr arabísku og persnesku. Rit Aristótelesar, Platóns og annarra forngrískra hugsuða voru tekin til gagnrýninnar skoðunar, túlkuð á nýjan hátt og þróuð áfram innan menningarsvæðis sem spannaði allt frá Bagdad til Kordóba. Þegar þessi þekking rataði svo aftur inn á borð vestrænna fræðimanna var hún löngu hætt að vera „hrein“ grísk arfleifð. Hún var búin að fara krókaleið austur á bóginn á leið sinni til að verða grunnur menningar lengra í vestri.

Annað sem oft er sett fram sem grundvöllur vestrænnar menningar eru trúarbrögðin Kristindómur. En kristin trú er fjölbreytt og ekki iðkuð á sama hátt á öllum Vesturlöndum. Það er t.d. talsverður munur á kristinni trú (og gildunum sem henni fylgja) innan allra þessara landsvæða sem talin voru upp áðan. Bæði innan landanna sjálfra og á milli þeirra getur verið munur á trúariðkun milli ólíkra kristinna hópa. En hvað er kristni annað en austræn trúarbrögð, sprottin upp úr menningu og trúarbragðahefðum sem koma einmitt frá þeim landsvæðum sem Vesturlönd setja sig alla jafna í mesta andstöðu við? Oft virðist meira að segja gleymast að Kristnir íbúar Vestur-Asíu þjást alveg jafn mikið og samlandar þeirra í stríðsbrölti Vesturlanda á svæðinu.

Í dag vísar fólk þó oftast í virðingu fyrir mannréttindum, lögum og réttlæti þegar það talar um vestræna menningu. Vestrænt er orðið að samnefnara um skilgreiningu okkar á siðmenningu. Hugmyndin sem er ríkjandi í dag er sú að þetta svæði, Vesturlönd, séu lönd þar sem réttindi fólks eru virt. Löndin sem tilheyra þessum menningarheim hafa þó sjálf gerst sek um ýmis mannréttindabrot, hvort það er gagnvart eigin þegnum eða þegnum annarra ríkja. Virðingin fyrir mannréttindum virðist oft einskorðast við ákveðna hópa. Við sjáum mannréttindi trans- og hinsegin fólks brotin á bak aftur í Bandaríkjunum og í sumum ríkjum Evrópu, og réttindi kvenna eiga undir högg að sækja víða. Svo ekki sé talað um réttindi annarra minnihlutahópa, frumbyggja, innflytjenda eða fólks á flótta. Mannréttindi hverra stendur vestræn menning þá vörð um?

„Sá samanburður er ekki saklaus; hann gerir okkur að einhvers konar mælikvarða“

Ef vestræn menning er skilgreind af sameiginlegri ást á mannréttindum, lögum og réttlæti þá hefði mátt ætla að fólkið sem upplifir sig sem hluta af þessari menningu, eða jafnvel sem kyndilbera hennar, myndi einnig standa vörð um mannréttindi þeirra sem eiga undir högg að sækja. En svo virðist ekki alltaf vera raunin. Oft finnst mér líkt og ótrúlega mikið kapp og orka fari í að bera okkur saman við önnur menningarsvæði til þess að skilgreina hver við erum. Sá samanburður er ekki saklaus; hann gerir okkur að einhvers konar mælikvarða, þar sem önnur menning birtist sem frávik frá því sem er venjulegt. Að skapa sjálfsmynd út frá þessum forsendum stillir öllu öðru óhjákvæmilega neðar í stigveldið. Þetta hefur yfirleitt frekar þau áhrif að við ýtum undir hugmyndir um yfirburði okkar menningar, án þess að gefa því gaum hvað fólk getur lært hvert af öðru. Möguleikarnir á að læra geta þannig orðið yfirborðskenndir, því undir niðri er sú hugsun að við höfum ekkert raunverulegt að læra. Í samskiptum manna á milli væri slíkt ekki talið vænlegt.

Þessar hugmyndir um yfirburði hafa það einnig í för með sér að þau sem við teljum neðar í stigveldinu verða einhvern veginn minna mennsk en við. Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég er að velta þessu fyrir mér. Mér finnst ég í síauknum mæli horfa upp á að fólk hérlendis sjái fólk eins og ættingja mína í Egyptalandi ekki eins og þau séu mannleg, á sama hátt og það sér fólk nær okkur. Það er hálfpartinn út í hött að þurfa að útskýra að ættingjar mínir í Egyptalandi séu gott fólk til þess að sanna tilverurétt þeirra.

Þau eru ekki vestræn, þau eru bara voðalega venjulegt fólk í Egyptalandi. Þau eru ekki einstök, þau eru ekki eina fólkið sem er eins og þau, þau eru bara þau. Þau hafa áhyggjur af börnunum sínum ef þeim gengur illa í skólanum, þau kvarta yfir hækkandi matarverði og þau vilja hugsa vel um gamla fólkið sitt. Þau fara út að skemmta sér, á ströndina og æfa íþróttir. Þau halda upp á egypskar hátíðir, borða egypskan mat og eru mjög egypsk. Ég fattaði það þegar ég fór sjálf að stúdera verk Edward Said og fleiri að þessi lýsing mín á þeim var ósanngjörn. Þau eru ekki vestræn því vestrænt er ekki mælikvarði á hvort fólk sé gott.

„Þau eru ekki vestræn því vestrænt er ekki mælikvarði á hvort fólk sé gott.“

Þau - og annað fólk sem svipar til þeirra - á alveg sama rétt á friði og mannréttindum og við.

Það er meira að segja margt sem við getum lært af þeim menningarheimum sem við teljum standa utan hins vestræna heims. Til dæmis hve gestrisni er þar í hávegum höfð, hvað samfélagshugsunin er oft ríkjandi frekar en einstaklingshyggjan og hversu örlátt fólk er, þótt það hafi jafnvel lítið milli handanna. Mér finnst það ekki hljóma ósiðmenntað. Kannski er þetta hluti af einhverju sem manneskjur geta ræktað með sér, hvar sem þær búa? Því vissulega fyrirfinnast þessir eiginleikar hjá okkur líka. Mögulega er það sem við teljum vera óhagganlega vestrænt, bara eitthvað sem ætti að vera talið sammannlegt en ekki notað til að skipta fólki upp í gott eða slæmt, siðmenntað eða ósiðmenntað, eftir ósýnilegum línum. Við getum öll lært af hvoru öðru, það gengur ekki bara í aðra áttina.

Við lítum stundum fram hjá sögulegu samhengi og förum auðveldu leiðina í að útskýra hvers vegna hlutirnir eru eins og þeir eru í dag. Við teljum að þessir staðir séu í eðli sínu óæðri af því að við erum búin að skilgreina þá þannig: Ekki siðmenntaðir, ekki vestrænir, ekki samræmanlegir okkur. Þá er miklu auðveldara að líta undan þegar fólk utan hins vestræna menningarheims þjáist eða líður skort á mannréttindum. Undir niðri kraumar hugmyndin að Vesturlönd séu góð og hin löndin eru slæm. Það slæma sem hendir fólkið þarna úti kemur okkur lítið við, jafn vel þótt við hér höfum tekið ákvarðanir sem skapa slæmu aðstæðurnar sem þau finna sig í. Það er eins og við séum búin að ætla að eðli þeirra geri það að verkum að þau séu bundin til þess að þjást.

Þegar við skiptum fólki eftir ósýnilegum línum verðum við líka blind á það hversu margt sameiginlegt aðrir menningarhópar geta átt með okkur, og með hvorum öðrum, þvert á trúarbrögð eða lifnaðarhætti. En einmitt þannig höfum við farið að líta á fólk sem á uppruna sinn utan þessa óljósa landsvæðis sem er í vestur af öllu öðru. Það er gott að hafa þetta bakvið eyrað næst þegar einhver reynir að selja okkur þá hugmynd að fólk sé í eðli sínu verra út af því að það fæddist einhvers staðar utan hins vestræna menningarheims. Sjálf skilgreiningin er óljós og ekki til þess fallin að mæla það hvort fólk eigi rétt á að lifa í friði og öryggi. Og alls ekki til þess til þess fallin að dæma hvort fólk sé gott eða slæmt.

#hugleiðingar #menningu #vestræna


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26686/hugleidingar-um-vestraena-menningu/

📰 Aðrar fréttir

Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
📅 22.10.2026 👁️ 2
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
📅 22.10.2026 👁️ 2
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
📅 22.10.2026 👁️ 3
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
📅 22.10.2026 👁️ 3
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 3
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 2
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmd...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alrík­is­sak­sókn­ari segir mann­inn hafa aflað upp­lýs­inga um fram­leiðslu bryn­var­inn...
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
The congresswoman said federal agents seized over a dozen items, including cell phones and notebooks, as part of a federal investigation.
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
📅 22.10.2026 👁️ 2
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjölluna...
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina...
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi ...
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
📅 22.10.2026 👁️ 4
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis....
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
📅 22.10.2026 👁️ 3
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
Some cities including Lyon and Nice have banned all protests, and the French president said only authorised demos would be allowed.
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
📅 22.10.2026 👁️ 4
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
Every winter, the Canary Islands draw visitors from much further away than Manchester or Madrid. Canadians escaping frozen mornings and Americans chas...
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
📅 22.10.2026 👁️ 4
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir...
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot, er að sögn lögmanns hans fárveikur í fangelsi. Biður hann fólk um að biðja fyrir Tate.B...
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
Elva Hrönn Hjartardóttir, fjáröflunarstýra hjá Amnesty International, er nýkomin frá París. Hún segir fréttir af borginni í ljósum logum gefa ranga my...
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og efti...
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
📅 22.10.2026 👁️ 4
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
A man was rescued from an overturned car in Lanzarote yesterday afternoon (Wednesday) after firefighters used hydraulic tools to open the driver’s doo...
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum ...
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupp...
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
📅 22.10.2026 👁️ 4
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
The BBC's technology correspondent Joe Tidy explains how it happened, and what it means for you.
Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ - Vísir
Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal veltu því sennilega margir fyrir sér í gærkvöldi hvers vegna Gunnar Helgason, barnabókahöfundur og leikari, deildi ...
Harry Brook hits 202 for England against Sri Lanka in ODI tri-series
📅 22.10.2026 👁️ 4
Harry Brook hits 202 for England against Sri Lanka in ODI tri-series
Captain Harry Brook becomes the first England batter to make a double century in a one-day international with a sensational 202 against Sri Lanka in R...
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 22.10.2026 👁️ 5
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
📅 22.10.2026 👁️ 5
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
📅 22.10.2026 👁️ 5
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
📅 22.10.2026 👁️ 5
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
📅 22.10.2026 👁️ 5
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 5
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
📅 22.10.2026 👁️ 5
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Commen...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
📅 22.10.2026 👁️ 5
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Trial hears Tommy Robinson hired private detectives to find Daily Mail reporters
📅 22.10.2026 👁️ 4
Trial hears Tommy Robinson hired private detectives to find Daily Mail reporters
The political activist denies wanting to expose two Daily Mail journalists to threats of violence.
Tommy Robinson hired detectives to find Daily Mail journalists, court told
📅 22.10.2026 👁️ 3
Tommy Robinson hired detectives to find Daily Mail journalists, court told
The political activist denies wanting to expose two Daily Mail journalists to threats of violence.
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 5
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í...