Huggulegt Sigvaldahús til sölu

Glæsilegt og mikið endurnýjað endaraðhús í suðurhlíðum Kópavogs hefur verið sett á sölu fyrir 184,9 milljónir króna. Um er að ræða 214,3 fermetra eign á tveimur hæðum sem stendur á vinsælum stað með fallegu útsýni til suðurs, vesturs og austurs.
Húsið var reist árið 1967 og var það Sigvaldi Thordarson sem teiknaði það. Eignin hefur hlotið viðurkenningu frá Kópavogsbæ fyrir endurbætur og hefur verið endurnýjuð og viðhaldið af mikilli kostgæfni af núverandi eigendum.
Samkvæmt fasteignasölu er húsið vel skipulagt og skiptist í forstofu og hol, fjögur svefnherbergi, gestasalerni, aðalbaðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottaherbergi, geymslu undir stiga og innbyggðan bílskúr. Íbúðarrýmið er 187,1 fermetri en bílskúrinn 27,2 fermetrar.
Frá efri hæð eru um 50 fermetra svalir sem liggja út frá stofu annars vegar og hjónaherbergi hins vegar. Þaðan nýtur fallegs útsýnis yfir nærliggjandi svæði.
Lóðin er gróin og steypt bílaplan er með hitalögn. Eignin er sögð sameina vandaðan frágang, góða staðsetningu og rúmgott fjölskylduhúsnæði á eftirsóttum stað í Kópavogi.