Nokkrar líkur eru á gosupptökum í grennd við skjálftahrinuna sem orðið hefur á Mosfellsheiði í gær og í dag, ef marka má skýrslu Veðurstofunnar sem var birt í apríl.
Skjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins rétt fyrir klukkan 14 í dag átti upptök sín á suðaustanverðri Mosfellsheiði, skammt norður af afleggjaranum frá Suðurlandsvegi að Þrengslunum.
Skjálftinn var 4,5 að stærð og hefur fjöldi eftirskjálfta mælst í kjölfarið, nokkrir þeirra yfir 3 að stærð.
Upptök skjálftans voru ekki ýkja langt frá Hveradalabrekkunni en sífellt aukinnar jarðhitavirkni hefur orðið vart þar síðustu ár, eins og mbl.is og Morgunblaðið hafa greint frá.
Mjög miklar líkur skammt frá
Í skýrslu Veðurstofunnar sem var birt í apríl er vikið að Hveradalabrekkunni þar sem nokkrar líkur eru taldar á gosupptökum þar, og mjög miklar líkur þar mjög skammt frá.
Líkur á gosupptökum eru metnar samkvæmt reiknilíkani sem byggir á gossögu og jarðfræði svæðisins.
Ekki er verið að meta hversu líklegt er að gos komi upp á svæðinu á komandi árum.
