Ferðamenn sem lögðust til svefns á Hótel Skjaldbreiði við Laugarveg í Reykjavík í gærkvöld vakna í dag á öðrum hótelum í eigu sömu hótelkeðju. Starfsmenn fóru strax í það að koma fólkinu út og finna því gistingu annars staðar þegar eldur kviknaði í kjallara hússins.
Tveir voru fluttir á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun og einn var handtekinn vegna eldsvoðans. Auk Hótels Skjaldbreiðar er fatabúðin Andrá í húsinu.
Kristófer Oliversson er forstjóri Center hotels sem eiga og reka Hótel Skjaldbreið.
„Það var næturvörður á hótelinu og komu strax þrír aðrir starfsmenn af nærliggjandi hótelum. Það var mjög hratt brugðist við, bankað á öll herbergi og fólki komið.“
„Við gátum komið þeim á önnur hótel hjá okkur en þau fara og sækja farangur sinn með morgninum.“
Það verður bið á því að gestir verði innritaðir á Hótel Skjaldbreið.
„Þetta hótel verður náttúrulega lokað í einhverja daga eða jafnvel vikur. Það er brunalykt og þrif og annað slíkt. Það er alltaf slæmt. Þetta eru 33 herbergi af rúmlega þúsund herbergjum þannig að við komumst alveg í gegnum þetta.“
Fólk sem á bókaða gistingu á Hótel Skjaldbreiði á næstunni fær inni á öðrum hótelum í eigu Center hotels meðan unnið er að því að koma Skjaldbreiði aftur í rekstur.
„Það er fyrst og fremst það, þrif og viðgerðir. Tjónið er í kjallaranum. Svo fylgir þessum bruna reyklykt og annað sem þarf að þrífa út sem getur verið mismunandi erfitt.“
Bjarki Magnússon tók upp myndskeiðin sem fylgja fréttinni.