Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar því að setja nýja tolla á Kanada vegna mikillar loftmengunar sem hefur borist frá Kanada til Bandaríkjanna vegna skógarelda í Kanada.
Ríflega 880 skógareldar geisa í Kanada og mikill meirihluti þeirra brennur stjórnlaust. Yfir 190 þeirra loga í Ontario og hefur mikil loftmengun borist yfir landamærin til Minnesota, Michigan, Pennsylvaníu, Ohio og New York í Bandaríkjunum.
Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social að það væri óásættanlegt að Bandaríkin væru að fá til sín skítugt, mengað og óheilsusamlegt loft að óþörfu. Hann sagðist ætla að hringja í forsætisráðherra Kanada og krefjast skýringa því Kanada væri ekki að viðhalda skóglendi sínu nægilega vel. Trump sagði að mengunin væri að kosta Bandaríkin milljarða dollara og kostnaðinum vegna mengunarinnar yrði bætt við tolla Kanada.
Mark Carney forsætisráðherra Kanada hefur ekki brugðist við þessum ummælum Bandaríkjaforseta. Carney hefur þó áður sagt það á ábyrgð bæði Bandaríkjanna og Kanada að takast á við loftslagsbreytingar.
Miklir hitar og lítil úrkoma skapa kjöraðstæður fyrir skógarelda
Breska ríkisútvarpið BBC ræddi við vísindafólk um loftmengunina af völdum skógareldanna. Dr. Patrick James, vísindamaður við Háskólann í Toronto, sagði að þegar mengunin væri komin í andrúmsloftið þá myndi hún berast áfram með vindinum. „Veðrinu stendur á sama um landamæri milli ríkja,“ sagði James.
Sérfræðingar segja að mikið af þeim skógareldum sem geisi núna séu á stóru afskekktu skóglendi sem getur verið erfitt að ná til áður en eldurinn breiðist út enn frekar.
Skógareldar eru algengir í Kanada en fjöldi þeirra nú er rakinn til mikilla hita í lok júní í norður Ontario og úrkomu undir meðallagi. Vísindamenn segja skógareldana séu að hluta til vegna loftslagsbreytinga sem skapi heitar og þurrar aðstæður sem verði til þess að eldarnir breiðist hratt út. Þá hafa sumir skógarelda kviknað af völdum eldinga.
“Loftslagsbreytingar eru málefni alls heimsins og það væri ónákvæmt að segja að Kanada eitt og sér hafi komið eldunum af stað eða hefði getað komið í veg fyrir skógareldana,“ segir dr. Anabela Bonada við Háskólann í Waterloo, í viðtali við breska ríkisútvarpið.