Í færslu sem hann skrifaði á Truth social rifjar Trump upp að í fyrra hafi Bandaríkjamenn gert umfangsmiklar árásir gegn Hútum vegna ítrekaðra árása þeirra á skip á Rauðahafi. Síðan þá hafi leiðtogar Húta sýnt mikla ábyrgð.
Sjá einnig: Hútar hættir árásum á skip og Ísrael
Nú séu þeir hins vegar aftur byrjaðir að haga sér illa, með því að skjóta á tvö skip frá Sádi-Arabíu í gær. Þeir hæfðu minnst eitt þeirra en Sádar hafa reynt að koma olíu þeirra til kaupenda gegnum Rauðahaf, eftir að Íranir hófu árásir á skip á Hormússundi.
Sjá einnig: Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali
Forsetinn sagði að færsluna ætti að líta á sem yfirlýsingu þess efnis að ef Hútar geri aftur sambærilegar árásir muni Bandaríkin líta svo á að Íranir beri ábyrgðina, enda séu Hútar skósveinar þeirra.
Báðum aðilum verði refsað með umfangsmiklum árásum.
Þá sagðist Trump verulega vonsvikinn með Húta, þar sem þeir hefðu hingað til „hagað sér mjög fagmannlega og gáfulega“.
Hútar, sem njóta stuðnings frá Íran, hafa um árabil háð blóðuga styrjöld við alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen. Þeir hafa sömuleiðis gert árásir í Sádi-Arabíu en Sádar hafa staðið við bakið á yfirvöldum í Jemen.
Bandaríkjamenn hafa verið að flytja töluvert af eldsneytisflugvélum, eftirlitsflugvélum og önnur hergögnum á svæðið. Samkvæmt yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum eru rúmlega fimmtíu þúsund bandarískir hermenn við störf í Mið-Austurlöndum.
Bendir það til þess að Trump vilji í það minnsta halda opnum þeim möguleika að auka enn frekar umfang árása á Íran.