Bransamiðillinn Variety fjallar um aðsóknartölur og stórtap Digger. Kvikmyndin hefur fengið misjafnar viðtökur gagnrýnanda, allt frá miklu lofi yfir í sleggjudóma, en ívið betri viðbrögð hjá áhorfendum sem hafa þó ekki skilað sér nægilega vel í bíóhús.
Digger er hamfaramynd í leikstjórn Alejandro González Iñárritu með Tom Cruise, John Goodman, Söndru Hüller og Riz Ahmed í aðalhlutverkum sem fjallar um olíujöfurinn Digger Rockwell sem steypir heiminum í glötun og þarf að reyna að bjarga sér úr heimsendaklípu.
Sjá einnig: Digger grefur sína eigin gröf
Digger kostaði 180 milljónir dala (um 22 milljarða króna) að framleiða, var frumsýnd í byrjun mánaðar og halaði inn tuttugu milljónum dala (um 2,4 milljarða króna) á heimsvísu opnunarhelgina. Kvikmyndaverið Warner Bros. Discovery horfði í kjölfarið fram á allt að 200 milljóna dala tap (um 24 milljarða króna).
Eftir aðra viku í bíóhúsum hefur útlitið þó versnað til muna. Aðsókn á Digger dróst saman um sextíu prósent milli helga og stendur heildaraðsóknin nú í fimmtíu milljónum dala (um sex milljarða króna). Ekki þykir líklegt að aðsóknin muni batna mikið úr þessu, þrátt fyrir ánægju margra áhorfenda, enda dregst aðsókn yfirleitt saman eftir því sem á líður.
Variety heldur því fram að til að koma út á núlli þyrfti Digger að græða um 350 milljónir dala (rúmlega 42 milljarða króna) á heimsvísu, vegna þess að bíóhús taka um helming af miðasölutekjum. Talsmaður Warner Bros. hefur neitað fyrir það og sagt núllpunktinn vera nær 300 milljónum dala.
Uppblásinn kostnaður og mislukkuð markaðsherferð
Ástæðan fyrir þessu mikla tapi Digger skýrist að miklu leyti af gríðarháum kostnaði myndarinnar og markaðsherferð sem hefur ekki náð til almennings.
Upphaflega átti framleiðsla myndarinnar að kosta 125 milljónir dala en sú upphæð blés upp í 180 milljónir dala þegar tökur fóru fram úr áætlunum. Í þokkabót eyddi kvikmyndaverið um 100 milljónum dala í markaðsherferðina og mun væntanlega fara í herferð fyrir Óskarinn á næstunni.
Fjölmargar kvikmyndir skila auðvitað ekki hagnaði í bíóhúsum og geta grætt pening á streymisveitum en þeir samningar velta líka á miðaölutekjum. Kvikmyndaverið þarf þó að bíða enn lengur því Cruise fær í þessu tilfelli hluta af gróðanum.
Verði tapið jafnmikið og er spáð gæti Digger ekki aðeins orðið stærsta flopp ársins heldur eitt stærsta flopp sögunnar og skipað sér í flokk með kvikmyndum á borð við Cutthroat Island (1995), Mortal Engines (2018), The 13th Warrior (1999) og The Marvels (2021).
Digger er síðasta sjálfstæða kvikmynd Warner Bros. Discovery áður en það sameinast kvikmyndaverinu Paramount sem keypti hið fyrrnefnda á 110 milljarða dala (um 13 trilljónir króna) í síðustu viku.
Eftir gott gengi í fyrra hefur Warner Bros. sent frá sér hvert floppið á fætur öðru í ár, þar á meðal The Bride og Supergirl. Kvikmyndaverið bindur hins vegar vonir við að stórmyndin Dune: Part III muni snúa genginu við í desember.