Ísraelsher handtók tugi Palestínumanna á Vesturbakkanum í dag eftir að minnst fjórir Palestínumenn og tveir ísraelskir hermenn létust eftir skotbardaga í gær.
Forsætisráðherra Ísraels hét harkalegum viðbrögðum við atvikinu.
Skotbardaginn varð þegar vopnaðir ísraelskir landtökumenn nálguðust palestínskt þorp. Palestínsk yfirvöld á Vesturbakkanum segja að þeir hafi ætlað að ráðast á þorpsbúana.
Samkvæmt umfjöllun Reuters hélt Ísraelsher því fyrst fram að fólkið hefði verið í göngu en viðurkenndi síðar að sumir hefðu verið vopnaðir. Skipst var á skotum áður en herinn skakkaði leikinn.
Vildi leggja heimili eins í rúst
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, lýsti því yfir að brugðist yrði harkalega við vegna atviksins. Meðal annars vill hann leggja heimili eins Palestínumannanna í rúst og flýta fyrir uppbyggingu heimila landtökumanna á svæðinu.
Tugir Palestínumanna voru yfirheyrðir og handteknir. Bæjarstjórinn í þorpinu segir að herinn hafi gert rassíur á heimili fólks og að herinn keyri um göturnar.
Milljónir Palestínumanna búa á Vesturbakkanum sem Ísrael hernam árið 1967. Þar eru hundruð þúsunda ísraelskra landtökumanna. Árásir þeirra á palestínsk þorp hafa aukist mjög á síðustu mánuðum.
Landtökubyggðirnar brjóta í bága við alþjóðalög að mati næstum allra landa heimsins.