Milljónamæringar í Bretlandi hafa skrifað opið bréf til Andys Burnhams forsætisráðherra þar sem þeir biðja hann um að skattleggja sig meira. Meðal þeirra sem skrifa undir bréfið eru Gary Lineker, fyrrverandi fótboltamaður og fjölmiðlamaður, leikstjórinn Richard Curtis og rithöfundurinn Val McDermid.
„Við elskum þetta land og viljum að það nái árangri
Hópurinn Þjóðræknir milljónamæringar stendur fyrir bréfinu og alls skrifuðu 120 vel stæðir Bretar undir það. Þar kemur fram að þeir hafi efni á skattahækkuninni.
„Við erum ekki að tala um hærri skatta á þá sem þurfa að vinna fyrir tekjunum sínum daglega heldur á þá allra ríkustu sem fá auð sinn af tekjum sem þeir eiga.“
Í bréfinu kemur fram að með því að skattleggja þá allra ríkustu yrði samfélagið jafnara. Þar er einnig hvatt til þess að auður og völd séu færð frá þeim allra auðugustu.
Hópurinn styður 2% skattlagningu á auð sem er meiri en tíu milljónir punda.
„Milljónamæringar eru þjóðræknir. Við elskum þetta land og viljum að það nái árangri. En árangur krefst fjárfestingar og aðaluppspretta ósnortins fjármagns liggur hjá okkur, í óskattlögðum möguleikum.“
Fólk getur gefið peninga eða hlutabréf til ríkissjóðs landsins í gegnum ákveðið fyrirkomulag.
Emma Reynolds, embættismaður í fjármálaráðuneytinu og þingmaður, segist fagna því að breskir milljónamæringar vilji hækka skattana sína en að allar stórar breytingar yrðu tilkynntar í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
„Ég fagna því að fólk í góðri stöðu segist vilja borga meira. Það getur borgað meira.“
Hún benti síðan á tengil fjármálaráðuneytisins um framlög.
Útilokar ekki skattahækkanir
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem milljónamæringar krefjast þess að fá að borga hærri skatta en hópurinn var með svipaða herferð í fyrra.
Lineker spurði Burnham út í skattahækkunina í hlaðvarpi 15. júlí, nokkrum dögum áður en hann tók við embætti forsætisráðherra. Burnham sagðist ekki útiloka auðlegðarskatt og gaf í skyn að ríkisstjórn hans myndi hækka skatta lítillega á einhverjum tímapunkti.
„Ég ætla ekki að útiloka neitt núna. Ég trúi því að við þurfum meiri sanngirni.“
Með tímanum þyrfti hann að taka ákvarðanir sem yrðu erfiðar.
„Ég ætla ekki að hika við það. Við þurfum að leggja hart að okkur til að tryggja að við getum borgað fyrir kostnaðinn. Og á einhverjum tímapunkti gæti það þýtt að við þurfum að biðja um örlítið meira en þessar ákvarðanir eru ekki tímabærar.“