Holland tapaði 1:0 á heimavelli gegn Alsír í vináttuleik þjóðanna í fótbolta í Rotterdam í Hollandi í kvöld.
Landsliðin sem leika á HM í Norður-Ameríku leggja nú lokahönd á undirbúning sinn fyrir stórmótið.
Leikurinn bar þess merki að um vináttuleik var að ræða en Hollendingar gerðu fimmfalda breytingu í hálfleik og skiptu að lokum öllum byrjunarliðsmönnum sínum af velli.
Hollendingar eru í riðli með Japan, Svíþjóð og Túnis á meðan að Alsír mætir Argentínu, Austurríki og Jórdaníu.
Fleiri vináttulandsleikir fóru fram í kvöld en þar má nefna að Danir gerðu markalaust jafntefli við Austur-Kongó, Ítalir lögðu Lúxemborg 1:0 og Pólland og Nígería gerðu 2:2 jafntefli.
Þá vann Haítí stórsigur á Nýja Sjálandi 4:0 fyrr í dag en bæði liðin verða í eldlínunni á HM í sumar.