ÖBÍ réttindasamtök hafa höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn Reykjavíkurborg vegna fjárhagsáætlunar borgarinnar fyrir árið 2026, þar sem ekki er gert ráð fyrir neinni fjölgun NPA-samninga á árinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÖBÍ.
ÖBÍ krefst viðurkenningar á því að borgin hafi með samþykkt áætlunarinnar í borgarstjórn, þann 2. desember 2025, brotið gegn lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Þá lágu fyrir að minnsta kosti 42 samþykktar umsóknir um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) sem biðu þess eins að þjónustan yrði fjármögnuð.
„Að baki hverri umsókn er fatlaður einstaklingur sem borgin hefur þegar staðfest að eigi rétt á aðstoðinni en fær hana ekki. Fjárhagsáætlunin gerir ekki ráð fyrir neinni fjölgun NPA-samninga á árinu 2026 og borgin hefur sjálf staðfest að umsóknirnar verði ekki fjármagnaðar á árinu,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Tíminn verður ekki bættur eftir á
Bent er á að notendastýrð persónuleg aðstoð geri fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi á eigin forsendum og stjórna því sjálft hver aðstoðar það, við hvað og hvenær.
„Þjónustuformið er lögfest útfærsla á rétti fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs samkvæmt 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hefur lagagildi hér á landi. Á meðan samþykktar umsóknir sitja ófjármagnaðar á biðlista er fólki í reynd meinað að taka þátt í daglegu lífi, námi, atvinnu og félagslífi til jafns við aðra. Sá tími verður ekki bættur eftir á.“
Haft er eftir Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, formanni ÖBÍ réttindasamtaka, að borgin viðurkenni rétt einstaklinga til aðstoðar en kjósi að fjármagna hana ekki.
„Réttindi fatlaðs fólks eru ekki valkvæður útgjaldaliður sem má fresta milli ára, þau eru lögbundin og borginni ber að standa við þau,“ er haft eftir Ölmu.
Með málinu vill ÖBÍ fá úr því skorið hvort sveitarfélögum sé heimilt að samþykkja umsóknir um lögbundna þjónustu en skilja fólk síðan eftir á biðlista árum saman með því að fjármagna hana ekki.
Málið verður þingfest í dag, fimmtudaginn 4. júní 2026.