Það munar innan við prósentustigi á já- og nei-fylkingunum í síðustu könnun Maskínu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Af þeim sem tóku afstöðu í könnuninni, sem framkvæmd var í gær, sögðust 50,4% ætla að segja já, en 49,6% sögðust ætla að segja nei við því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Maskína greindi frá niðurstöðum könnunarinnar í gærkvöldi. Í tilkynningu segir að munurinn sé innan vikmarka og ómögulegt að segja til um úrslitin.
Svarendur í könnuninni voru 3.274. Af þeim sögðust 1.523 ætla að segja já, en 1.500 nei. 170 sögðust óákveðnir og 82 vildu ekki svara.