Varnarmaðurinn William Saliba er meiddur og gæti misst af HM í fótbolta með franska landsliðinu í Norður-Ameríku í sumar.
Frá þessu segir ESPN en Saliba meiddist í baki fyrir nokkrum vikum en hefur þrátt fyrir það haldið áfram að spila fyrir Englandsmeistara Arsenal.
Hann lék til að mynda allan leikinn í tapi skyttanna fyrir París SG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn var.
Saliba fer í læknisskoðun í dag og munu niðurstöður liggja fyrir fljótlega. Þó hefur franska landsliðið miklar áhyggjur af því að hann geti ekki tekið þátt á HM.
Saliba er algjör lykilmaður hjá bæði Arsenal og franska landsliðinu.