Þetta er meðal þess sem fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar segir þó að víða verði kaldi eða stinningskaldi í dag en hvassara í vinstrengjum á norðvestanverðu landinu. Sunnanáttinni fylgir súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en í öðrum landshlutum verður yfirleitt þurrt. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi.
Í nótt nálgast skilabakki úr vestri. Áttin verður því áfram suðlæg í fyrramálið, víða 10-18 metrar á sekúndu og talsverð rigning sunnan- og vestantil en þurrt að kalla um landið norðaustanvert.
Í kjölfar skilanna snýst í minnkandi suðvestanátt með lítilsháttar skúrum, fyrst vestast landinu þar sem skilin ganga yfir þegar líður að hádegi. Kólnar smám saman. Á miðvikudag er svo útlit fyrir hæglætis sunnanátt með dálitlum skúrum á víð og dreif, en léttskýjuðu veðri á Norðaustur- og Austurlandi.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Sunnan 10-18 m/s um morguninn og rigning sunnan- og vestanlands, en þurrt norðaustantil. Hiti 8 til 13 stig. Snýst síðan í minnkandi suðvestanátt með lítilsháttar skúrum, fyrst vestast á landinu. Kólnar smám saman.
Á miðvikudag:
Suðvestan 5-13, en hægari sunnanlands. Skýjað með köflum og dálitlar skúrir á víð og dreif, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 2 til 8 stig að deginum.
Á fimmtudag:
Sunnan 8-15 og rigning með köflum, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Vestlægari síðdegis og dregur úr vætu. Hiti 4 til 10 stig yfir daginn.
Á föstudag:
Suðvestan 5-13. Skýjað með köflum og fer að rigna síðdegis, en lengst af bjart um landið austanvert. Kólnar í veðri.
Á laugardag:
Suðvestanátt og rigning, en þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Fremur milt.
Á sunnudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt og kólnar með éljum um landið vestanvert.