Hlýjasta sumar í Bretlandi frá upphafi mælinga
Annað árið í röð mælist sumarhiti í Bretlandi hærri en nokkru sinni fyrr.
Heitasta sumar frá upphafi mælinga var í Bretlandi, annað árið í röð. Frá því greinir breska veðurstofan í dag, eftir að hverja hitabylgjuna á fætur síðustu vikur og víðtæka þurrka.
„Sumarið 2026 er, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum, það hlýjasta sem mælst hefur í Bretlandi. Loftslagsbreytingar af mannavöldum gerðu það um 130 sinnum líklegra að meðalhiti sumarsins yrði svo hár,“ sagði breska veðurstofan, Met Office.
Frá júní og til ágúst mældist meðalhiti í Bretlandi 16,5°C og sló fyrra met, sem sett var í fyrra, 16,1°C. Nærri þrír fjórðu hlutar Englands og allt Wales glímdu jafnframt við þurrka þar sem úrkoma varð afar lítil.
Júlí var sá næstheitasti frá upphafi mælinga í Bretlandi og í Englandi mældist hlýjasti júnímánuður frá upphafi fyrr í sumar. Fjöldi hitameta féll í miklum hitabylgjum.
Vísindamenn vara við því að loftslagsbreytingar geri öfgakennda veðuratburði ákafari og valdi því að hitamet falli sífellt oftar.
Alls 33 lönd, allt frá …