„Menn þurfa að byggja upp skráp til að taka þátt í þessu. Auðvitað er langæskilegast eftir kosningar að fólk fái að njóta þess að hafa fengið umboð og á rétt á því að fá að sinna sínum störfum í friði, ekki gagnrýnislaust en án þess að verið sé að hóta því, eða hreyta einhverjum illindum og ónotum í fólk, við viljum málefnalega umræðu. Ég er, og var, fyrir löngu síðan búinn að átta mig á því að brynja sig fyrir þessu og þetta er hluti af því að taka að sér ábyrgðarstöðu.“
Hlutum var varpað inn á lóð Bjarna: „Sumir telja sig alltaf ná að handleika sannleikann og réttlætið“