Fulltrúar í utanríkismálanefnd Alþingis sitja á fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Þar fer nefndin yfir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um viðræður við ESB og ræðir næstu skref.
Dilja Mist Einarsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, fagnar niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Aðspurð um efni fundarins segir hún:
„Ríkisstjórnin og utanríkisráðherra hafa verið mjög skýr um það að þau muni virða vilja þjóðarinnar þannig að ég geri ráð fyrir að það verði eitthvert upplegg til að fylgja því eftir.“
Meirihluti hafnaði því að hefja aftur viðræður við Evrópusambandið en ekkert hefur verið ákveðið um örlög umsóknarinnar sem var send inn 2008.
„Það hefur náttúrulega þegar verið gerð ein tilraun til þess að draga þessa umsókn til baka. Í ljósi yfirlýsinga, meðal annars frá Evrópusambandinu og yfirlýsinga ríkisstjórnarinnar um að virða vilja þjóðarinnar, þá gerum við ráð fyrir því að það verði farið í einhverjar aðgerðir til að brýna það fyrir Evrópusambandinu að Ísland sé ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu.“
Pawel Bartoszek, formaður utanrikismálanefndar og þingmaður Viðreisnar, segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar vonbrigði en óskar nei-sinnum til hamingju. Hann segir fundinn haldinn í samræmi við þingsköp þar sem utanríkisráðherra hafi óskað eftir fundi með nefndinni.
„Ég held að það sé bara tilefni til þess að ræða alla þætti málsins. Ég ætla ekkert að úttala mig um hver réttustu skrefin eru á þessari stundu. Ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki komið nóg af umræðu um Evrópusambandið og umsókn og viðræður. Ég held að þjóðin sé að mörgu leyti búin að fá nóg af því. Ég held að það sé kannski kominn tími til að við förum að einbeita okkur að öðrum viðfangsefnum heldur en að finna nýja fleti á þessu máli til að halda því gangandi.“