Hlé á árásum milli Ísraels og Írans eftir brýningu Trumps

Hlé á árásum milli Ísraels og Írans eftir brýningu Trumps

Hlé á árásum milli Ísraels og Írans eftir brýningu Trumps

Hér látum við staðar numið í þessari fréttavakt.

Eftir snerru dagsins hafa Íranar og Ísraelar látið af eldflaugasendingum sín á milli. Íranar hófu árásir í gær, vegna innrásar Ísraela í Líbanon. Ísrael svaraði með árásum á mið- og vesturhluta Írans. Ekki hefur frést af mannfalli.

Báðir aðilar hóta því að hefja árásir af enn meiri þunga – Íranar ef Ísrael gerir árásir á Beirút, höfuðborg Líbanons, þar sem þeir segjast vera að herja á Hezbollah-hreyfinguna, og Ísrael segist á móti munu senda eldflaugar á skotmörk í Íran ef gerð verður árás á norðurhéruð Ísraels.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hvatti ríkin til að láta af skeytasendingum.

Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels fundar með öryggisráðuneyti sínu í kvöld.

Takk fyrir samfylgdina í dag.

Ísraelsher drap sjö manns í árásum á Líbanon í morgun, tilkynnti heilbrigðisráðuneyti Líbanons í dag. Þar á meðal var barn.

Allir biðu bana í árásum Ísraelshers á bæinn Zifta. Herinn særði átta manns í árásunum.

Ísraelsher hefur gert tæplega 3.500 loftárásir á Líbanon síðan samið var um vopnahlé 16. apríl, tilkynnti varnarmálaráðherra landsins, Michel Menassa, á ríkisstjórnarfundi í dag. Árásir Ísraela hafa verið hvað harðastar í suðurhluta Líbanons og hafa þorp og bæir verið jöfnuð við jörðu.

Ísraelar hafa að mestu hætt árásum á höfuðborg Líbanons, Beirút, en íbúar í suðurhluta landsins hafa ekki fundið fyrir því að vopnahlé hafi að nafninu til verið í gildi.

Yfir ein milljón manna, um fimmtungur landsmanna í Líbanon, er á vergangi vegna árása Ísraela sem hafa, í þessari hrinu, staðið síðan í byrjun mars.

Hezbollah hefur einnig gert árásir á norðurhluta Ísraels síðan vopnahlé tók gildi. Þær eru þó færri en árásir Ísraelshers.

Fimmtán manns hafa særst í árásum Ísraels á Íran síðan í gær, samkvæmt írönskum yfirvöldum. Enginn var drepinn í árásunum.

Ekki hafa borist fregnir af manntjóni í Ísrael eftir árásir Írans. Talið er að loftvarnakerfi í Ísrael hafi gripið allar sprengjur Íranshers.

Ísraelsher segist munu láta af árásum á Íran í samræmi við kröfu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Íranar tilkynntu fyrr í morgun að þeir ætluðu að hætta árásum sem hafa staðið síðan í gær.

Báðir deiluaðilar hafa þó sett varnagla við þetta vopnahlé. Ísraelar segjast munu hefja áráisir á ný ef Hezbollah-samtökin í Líbanon geri árásir á norður héruð landsins, og Íranar segjast hefja árásir á Ísrael að nýju ef þeir síðarnefndu ráðast á Beirút, höfuðborg Líbanons.

Ísraelsher hefur skemmt minjar á heimsminjaskrá UNESCO, menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, í árásum á borgina Tyre í suðurhluta Líbanons síðustu daga. Þetta tilkynnti menningarmálaráðuneyti landsins í morgun.

Tyre er ein elsta borgin við Miðjarðarhaf og er í um 20 kílómetra fjarlægð frá landamærunum að Ísrael. Minjar á lista UNESCO á tveimur stöðum í borginni hafa verið skemmdar í árásum.

Ísraelsher hefur gert harðar árásir á Tyre síðustu vikur. AFP hefur eftir embættismanni í Líbanon að verið sé að gera bráðabirgðamat á skemmdum en að sérfræðingar hafi ekki lagt í að mæta á staðinn vegna hættunnar sem dvöl þar hefur í för með sér.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir í nýrri færslu á miðli sínum Truth Social að Íran og Ísrael leiti leiða til að binda enda á átökin þeirra á milli sem hafa staðið síðan í gær.

„Lokaviðræður um „Frið“ halda áfram, nema fáfræði eða heimska þvælist fyrir.“

Trump sagði að hafnbanni gagnvart Íran yrði haldið til streitu þar til „Lokasamningur“ væri í höfn. Hann átti von á að hlutir færu að gerast hratt.

Íransher tilkynnti rétt í þessu að hann hefði hætt árásum á Ísrael í bili. Herinn varar þó við enn harðari árásum ef Ísraelar hefja á ný árásir á Líbanon.

Yfirlýsingin kom stuttu eftir að Bandaríkjaforseti krafðist þess að Íranar og Ísraelar myndu báðir hætta árásum strax.

Ekki hafa borist opinber viðbrögð frá stjórnvöldum í Ísrael við þessum vendingum.

Ísraelsher segist búast við margra daga átökum við Íran eftir að ríkin skutu hvort á annað í gær og í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu sem miðillinn Haaretz birti í morgun.

segir Íran hafa skotið hátt í 30 eldflaugum að landinu í árásunum í nótt. Þá hafi Hútar, bandamenn Írana í Jemen skotið tveimur flaugum að Ísrael.

Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa hins vegar ekki gert árásir á Ísrael í dag.

Á vef Guardian er haft eftir írönskum fjölmiðlum að herinn þar hafi skotið niður dróna yfir höfuðborginni Tehran í dag. Nokkrar sprengingar hafi heyrst í borginni en ekkert manntjón hefur verið tilkynnt.

Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans, Esmali Baghaei, segir Bandaríkin ábyrg fyrir árásarhneigð Ísraela. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í morgun, samkvæmt írönskum fjölmiðlum. Þá sagði hann að árásir Ísraels og misvísandi afstaða bandarískra embættismanna hafi varpað skugga á viðræður.

Árásir Írans og Ísraels hafa stigmagnast síðan í gær. Baghaei sagði einnig að afleiðingar þessarar stigmögnunar eigi einnig eftir að finnast í Bandaríkjunum.

Áður en Ísraelar hófu árásir á Íran í gærkvöld bárust fregnir af því að Bandaríkjaforseti hafi hvatt Benjamin Netanjahu, forsætisráðherra Ísraels, til að hefna ekki árása Írana.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hvetur stjórnvöld í Íran og Ísrael til að hætta strax árásum. „Ísrael og Íran verða að hætta árásum strax,“ segir Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social.

Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar í Tehran, höfuðborg Írans, sagði að hávær sprenging hefði heyrst í borginni í dag. Hann sagði að í framhaldinu hefði heyrst fjöldi minni sprenginga sem hann taldi vera frá loftvarnakerfum borgarinnar.

Íranski fjölmiðillinn Mehr sagði að „bandarísk-síónískur“ dróni hefði verið eyðilagður yfir höfuðborginni en gaf ekki frekari upplýsingar.

Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði í dag að gagnkvæmar eldflaugaárásir Írans og Ísraels gætu haft áhrif á viðræður um að binda enda á stríðið í Mið-Austurlöndum.

Esmaeil Baqaei sagði að það væri fullkomlega eðlilegt að árásirnar hefðu afleiðingar á viðræðurnar sem staðið hafa yfir. Hann tók þó fram að Íranar ætli að halda áfram að skiptast á sjónarmiðum við Bandaríkin með milligöngu pakistanskra yfirvalda.

Eldflaugaárásir Írana og Ísraela í gær og í dag hafa haft sín áhrif á markaði. Olíuverð hækkaði í morgun.

Brent-hráolía hækkaði um rúm fimm prósent í verði og kostar fatið 97,83 dollara. Olíuverð hækkaði líka á West Texas-markaðnum, um tæp fimm prósent, og kostar fatið þar 94,85 dollara.

Ísraelar segja að lítið tjón hafi orðið af eldflaugaárásum Írana í morgun. Einhverjar skemmdir hafi orðið á húsnæði á Vesturbakkanum þar sem brak féll úr eldflaugum en fólk hafi sloppið óskaddað.

Ísraelsher hefur gefið út að fólki sé óhætt að yfirgefa loftvarnabyrgi sín eftir síðustu árásina.

Fréttamenn AFP í Jerúsalem voru meðal þeirra sem leituðu skjóls í byrgjum meðan á árásinni stóð. Þeir sögðust hafa heyrt sprengingar.

Ísraelar skutu niður eldflaugar Írana.

Íranskir fjölmiðlar sögðu frá því í morgun að Ísraelar hefðu ráðist á efnafyrirtæki í suðvesturhluta Írans.

Karun efnaverksmiðjan í Mahshahr hefur verið starfrækt í rúm 20 ár og var á sínum tíma lýst sem fyrsta þekkingarfyrirtækinu til að vinna afurðir úr olíu.

Að sögn íranskra fjölmiðla voru starfsmenn látnir yfirgefa fyrirtækið. Nokkur ísraelsk flugskeyti hæfðu húsnæði þess.

Um leið og við bjóðum ykkur góðan dag hefjum við fréttavakt þar sem við ætlum að flytja ykkur tíðindi af eldflaugaárásum sem Íranar og Ísraelar hafa gert hvorir á aðra síðan í gær.

Íranar skutu eldflaugum og drónum að norðanverðu Ísrael í gær til að svara loftárásum þeirra síðarnefndu á suðurhluta Beirút í Líbanon. Þetta voru fyrstu árásir Írana á Ísrael síðan vopnahlé var gert í stríði Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran.

Ísraelar svöruðu með loftárásum á Tehran, Tabriz og Isfahan og sögðust hafa hæft hernaðarlega mikilvæg skotmörk. Í morgun gerðu Íranar svo aðra eldflauga- og drónaárás á Ísrael.

#hlé #milli #árásum #írans #ísraels


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-06-08-hle-a-arasum-milli-israels-og-irans-eftir-bryningu-trumps-477389

📰 Aðrar fréttir

Borgin boðar samráðsfund íbúa og fyrirtækjaeigenda vegna innbrotahrinu
📅 24.07.2026 👁️ 0
Borgin boðar samráðsfund íbúa og fyrirtækjaeigenda vegna innbrotahrinu
Íbúum Reykjavíkur ásamt aðilum verslunar og þjónustu er boðið til samráðsfundar til að ræða um öryggi í borginni. Fundurinn sem er haldinn í kjölfar m...
Bandarískir ferðamenn skapa stórhættu á íslenskum þjóðvegum – Fara ósofnir af stað eftir langt flug
📅 24.07.2026 👁️ 0
Bandarískir ferðamenn skapa stórhættu á íslenskum þjóðvegum – Fara ósofnir af stað eftir langt flug
Amerískir ferðamenn skapa mikla hættu á vegunum á Íslandi. Flestir þeirra hafa lítið frí, vilja nýta tímann og keyra strax af stað á bílaleigubílum, ö...
Chris Brown játaði of­beldis­fulla hegðun - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Chris Brown játaði of­beldis­fulla hegðun - Vísir
Brown, sem er 37 ára, átti að mæta fyrir dóm í október vegna alvarlegrar ákæru sem hann neitaði sök í. Hann var meðal annars ákærður fyrir tilraun til...
Halda sam­ráðs­fund vegna innbrotahrinu - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Halda sam­ráðs­fund vegna innbrotahrinu - Vísir
Þrír hafa verið handteknir vegna fjölda innbrota í miðborg Reykjavíkur en samkvæmt lögreglu er ekki um skipulagða glæpastarfsemi að ræða heldur tilvil...
Vopna­fram­leið­endur reyna að koma til móts við Evrópu - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Vopna­fram­leið­endur reyna að koma til móts við Evrópu - Vísir
Víða um Evrópu og í Kanada er unnið að því að auka fjárútlát til varnarmála. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa lengi þrýst á Evrópumenn um að taka meiri á...
Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ - Vísir
Kvikmyndaverið Paramount Pictures birti í gær fyrstu stikluna fyrir jólamyndina Ebenezer í leikstjórn Ti West. Myndinni er lýst sem myrkri aðlögun á h...
Auka ná­kvæmni rauntímaupplýsinga - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Auka ná­kvæmni rauntímaupplýsinga - Vísir
Kerfi hafi verið uppfærð og samræmd og birtist nú sömu upplýsingar í strætóskýlum, Klapp-appinu, á vef Strætó og í kortum Google og Apple. Þá taki kom...
Átján ára piltur búinn að fá nóg af þögn atvinnurekenda: „Ég fæ meira feedback frá köttunum mínum“
📅 24.07.2026 👁️ 0
Átján ára piltur búinn að fá nóg af þögn atvinnurekenda: „Ég fæ meira feedback frá köttunum mínum“
Átján ára piltur á Akureyri segist hafa sótt um störf á fleiri stöðum en hann geti talið án þess að fá nokkur viðbrögð frá atvinnurekendum. Pilturinn ...
Þröstur segir dapurlegt að hlusta á verkalýðsleiðtogana: „Það er skröksaga“
📅 24.07.2026 👁️ 0
Þröstur segir dapurlegt að hlusta á verkalýðsleiðtogana: „Það er skröksaga“
„Ef fullvalda ríkisstjórnir, á hverjum tíma og úr öllum flokkum, geta ekki tryggt þjóðinni nothæfan gjaldmiðil, þá er það fullveldi ekki mikils virði,...
Opnaði appið og trúði ekki eigin augum – Íbúi á höfuðborgarsvæðinu vann rúmar 45 milljónir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Opnaði appið og trúði ekki eigin augum – Íbúi á höfuðborgarsvæðinu vann rúmar 45 milljónir
Stálheppinn einstaklingur á höfuðborgarsvæðinu datt í lukkupottinn þegar hann vann 45,4 milljónir króna í EuroJackpot.Í tilkynningu frá Íslenskri gets...
Chris Brown pleads guilty to affray over bottle attack
📅 24.07.2026 👁️ 0
Chris Brown pleads guilty to affray over bottle attack
Assault and grievous bodily harm (GBH) charges against the US singer and a co-defendant are dropped.
Thousands left without power after electrical fire in South Tenerife
📅 24.07.2026 👁️ 0
Thousands left without power after electrical fire in South Tenerife
Thousands of residents were left without electricity yesterday evening (Thursday) after a piece of electricity network equipment that supplies power t...
Vara við hviðum á landinu suð­austan­verðu - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Vara við hviðum á landinu suð­austan­verðu - Vísir
Varað er við hviðum allt að þrjátíu metrum á sekúndu í vindstrengjum frá því seint í kvöld fram á hádegi á morgun á landinu suðaustanverðu. 
Í festival gír með Icewear - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Í festival gír með Icewear - Vísir
„Það er greinilegt að landsmenn hlakka til Verslunarmannahelgarinnar og margir farnir að huga að hátíðarfatnaðinum og fylgihlutunum,“ segir Sigrún Edd...
Sólmyrkvinn ógnar fjar­skiptum og Mærudagar ganga í garð - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Sólmyrkvinn ógnar fjar­skiptum og Mærudagar ganga í garð - Vísir
Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu og Neyðarlínan hefur ein...
Af­þakkaði milljón Banda­ríkja­dala fyrir eitt uppi­stand - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 0
Af­þakkaði milljón Banda­ríkja­dala fyrir eitt uppi­stand - Vísir
Yankovic ræddi hátíðina í tengslum við ákvörðun sína um að hætta við að taka þátt í auglýsingu fyrir hugbúnað þegar hann uppgötvaði að hún væri búin t...
Stórleikarinn næstum óþekkjanlegur í nýju hlutverki á Comic-Con
📅 24.07.2026 👁️ 1
Stórleikarinn næstum óþekkjanlegur í nýju hlutverki á Comic-Con
Bandaríski leikarinn Johnny Depp (63) kom aðdáendum á óvart með því að mæta á San Diego Comic-Con á fimmtudaginn, klæddur sem Ebenezer Scrooge.Depp mæ...
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Er pólitískt loforð nóg?
📅 24.07.2026 👁️ 1
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Er pólitískt loforð nóg?
Ég er ekki að skrifa þetta sem maður sem er annaðhvort með eða á móti ESB. Ég er bara að horfa á þetta út frá reynslu minni áralöngu af íslenskum stjó...
Vegfarendur trúðu ekki eigin augum - Sjáðu myndbandið
📅 24.07.2026 👁️ 1
Vegfarendur trúðu ekki eigin augum - Sjáðu myndbandið
Ótrúlegt myndband af birni sem sat fastur efst á rafmagnsstaur í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum síðustu daga....
Þekktir Íslendingar gera stólpagrín að áformum auðkýfingsins: „Hatursfullur vanviti“
📅 24.07.2026 👁️ 1
Þekktir Íslendingar gera stólpagrín að áformum auðkýfingsins: „Hatursfullur vanviti“
Elon Musk, eigandi Tesla, SpaceX og fleiri fyrirtækja, segist ætla að láta gervigreindarforrit sitt Grok búa til kvikmynd í fullri lengd byggða á Ódys...
Leita nýrra leiða til að nýta ofurheitan jarðhita
📅 24.07.2026 👁️ 1
Leita nýrra leiða til að nýta ofurheitan jarðhita
Jarðboranir hf. hafa undirritað samning við Orkuveituna um borun á rannsóknarholu. Markmiðið er að finna nýjar leiðir til nýtingar á ofurheitum jarðhi...
Ný gervigreind OpenAI braust úr lokuðu tilraunaumhverfi og réðst á tölvukerfi úti í heimi
📅 24.07.2026 👁️ 1
Ný gervigreind OpenAI braust úr lokuðu tilraunaumhverfi og réðst á tölvukerfi úti í heimi
Gervigreindarlíkön OpenAI fundu áður óþekktan öryggisgalla, brutust út úr lokuðu tilraunaumhverfi fyrirtækisins og réðust inn í framleiðslukerfi Huggi...
Carrickmacross: Police 'intercept car with bomb on way to attack in NI'
📅 24.07.2026 👁️ 0
Carrickmacross: Police 'intercept car with bomb on way to attack in NI'
Two people are arrested after a vehicle was stopped in County Monaghan in an operation targeting dissident republican activity.
Út­tekt land­læknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfs­fólk langt undir lág­marks­við­miðum - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Út­tekt land­læknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfs­fólk langt undir lág­marks­við­miðum - Vísir
Í byrjun febrúar voru tveir starfsmenn Hraunbúða handteknir vegna rannsóknar lögreglunnar á andláti konu á tíðræðisaldri á hjúkrunarheimilinu. Nú í jú...
Engin lán Landsvirkjunar lengur með ríkisábyrgð
📅 24.07.2026 👁️ 1
Engin lán Landsvirkjunar lengur með ríkisábyrgð
Engin lán Landsvirkjunar eru lengur með ríkisábyrgð eftir að félagið greiddi upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð í dag. Þetta kemur fram í tilkyn...
Orðið á götunni: Látum ekki aldraða sveit velja unga fólkinu framtíð
📅 24.07.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Látum ekki aldraða sveit velja unga fólkinu framtíð
Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki síst um framtíð unga fólksins á Íslandi. Neikvæða fólkið sem vill ekki leyfa landsmönnum að ákveða framtíð s...
Dulúðlegt mistur lagðist yfir höfuðborgarsvæðið: Gæti orðið algengara í framtíðinni
📅 24.07.2026 👁️ 1
Dulúðlegt mistur lagðist yfir höfuðborgarsvæðið: Gæti orðið algengara í framtíðinni
Eftir rigningatíð á suðvesturhorni landsins síðustu daga létti til eftir hádegi í gær og sást í bláan himinn sem ekki hefur verið algeng sjón að undan...
Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
📅 24.07.2026 👁️ 0
Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­...
Mikil eftir­spurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augna­blik sem aldrei gleymist“ - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Mikil eftir­spurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augna­blik sem aldrei gleymist“ - Vísir
Þar koma saman tónlist, myndlist, vísindi, geimferðir, tækni og vellíðan í kringum almyrkva á sólu og takmarkaður miðafjöldi í boði. Jón Bjarni segir ...
'Mermaid' spotted on Gran Canaria beach
📅 24.07.2026 👁️ 1
'Mermaid' spotted on Gran Canaria beach
Visitors enjoying a morning at Las Canteras Beach in Las Palmas de Gran Canaria were treated to an unexpected sight yesterday (Thursday) when a woman ...
Mikil ánægja með endurkomu Baldurs í Breiðafjörð
📅 24.07.2026 👁️ 1
Mikil ánægja með endurkomu Baldurs í Breiðafjörð
Ferjan Baldur hefur siglingar í Breiðafirði á ný í dag eftir að hafa siglt milli lands og Vestmannaeyja síðustu vikur. Jakob Björgvin Sigríðarson Jako...
Southport killer Axel Rudakubana manipulating the system, families' lawyer says
📅 24.07.2026 👁️ 1
Southport killer Axel Rudakubana manipulating the system, families' lawyer says
On Thursday, Axel Rudakubana was moved from prison to a secure psychiatric hospital in Berkshire.
Southport killer Axel Rudakubana appears to be manipulating the system, families' lawyer says
📅 24.07.2026 👁️ 0
Southport killer Axel Rudakubana appears to be manipulating the system, families' lawyer says
On Thursday, Axel Rudakubana was moved from prison to a secure psychiatric hospital in Berkshire.
Hallgrímur fengið nóg: „Ef þetta væru Íslendingar væri allt orðið vitlaust“
📅 24.07.2026 👁️ 1
Hallgrímur fengið nóg: „Ef þetta væru Íslendingar væri allt orðið vitlaust“
„Mér blöskrar þegar ég les fréttir þar sem menn eru að segja að þetta sé bara allt í góðu og komi engum á óvart,“ segir Hallgrímur Lárusson, framkvæmd...
Eldar brenna á Spáni og í Frakk­landi - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Eldar brenna á Spáni og í Frakk­landi - Vísir
Þúsundir hafa flúið heimili sín í Frakklandi og Spáni vegna þessa og hafa Frakkar farið fram á aðstoð frá Evrópusambandinu til að tækla elda sem þar b...
Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervi­greindina - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervi­greindina - Vísir
Umræða um innleiðingu svokallaðs „kill switch“, það er að segja úrræðis til að gera gervigreindarforrit óvirk, hefur aukist samfara miklum framförum t...
Viður­kenndu mis­tök og drógu stefnur gegn blaða­mönnum til baka - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Viður­kenndu mis­tök og drógu stefnur gegn blaða­mönnum til baka - Vísir
Stefnunum var ætlað að þvinga þrjá blaðamenn til að bera vitni fyrir svokölluðum ákærudómstól og opinbera þar hverjir heimildarmenn þeirra vegna frétt...
Skýjað með köflum - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Skýjað með köflum - Vísir
„Í dag hreyfist smálægð til austurs, skammt suður af landinu. Breytileg og síðar norðlæg átt 3-10 m/s og skýjað með lítilsháttar vætu af og til í fles...
Angela Rayner rules out rent controls in England
📅 24.07.2026 👁️ 1
Angela Rayner rules out rent controls in England
The housing secretary tells the BBC that the Renters Rights' Act is already having a significant impact on the market.
Southport-morðinginn fluttur á geð­deild - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Southport-morðinginn fluttur á geð­deild - Vísir
Í júlí 2024 gekk Axel Rudakubana inn á dansnámskeið fyrir börn í Southport og stakk þar þrjár stúlkur til bana. Þá særði hann átta önnur börn og tvo f...
Spyr hvers vegna karlar þurfi að standast erfiðara þrekpróf en konur til að komast í lögregluna
📅 24.07.2026 👁️ 1
Spyr hvers vegna karlar þurfi að standast erfiðara þrekpróf en konur til að komast í lögregluna
Kolbeinn H. Stefánsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, veltir því fyrir sér hvers vegna gerðar séu strangari líkamlegar kröfur til karla en...
Töldu sig fastar inni í „samkomumannvirki“ eftir lokun
📅 24.07.2026 👁️ 1
Töldu sig fastar inni í „samkomumannvirki“ eftir lokun
Lögregla leiðbeindi tveimur ungum stúlkum sem töldu sig vera fastar inni í „samkomumannvirki“ eftir lokun í gærkvöld eða nótt. Þær komust út um neyðar...
Töldu sig fastar inni í Egilshöll eftir lokun
📅 24.07.2026 👁️ 1
Töldu sig fastar inni í Egilshöll eftir lokun
Tvær ungar stúlkur töldu sig vera fastar inni í Egilshöll eftir lokun í gærkvöld. Þær höfðu farið á salernið eftir bíóferð og ekki komist út úr höllin...
Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar - Vísir
Í síðustu viku bárust fregnir af því að Valgeir Örn Ragnarsson hefði sagt skilið við fréttastofu Rúv og væri orðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsn...
Hlýjast sunnanlands næstu daga
📅 24.07.2026 👁️ 1
Hlýjast sunnanlands næstu daga
Í flestum landshlutum verður skýjað í dag með lítilsháttar vætu af og til en eftir hádegi léttir til sunnan- og vestantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjas...
Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar - Vísir
Nýju tollarnir eru á bilinu tíu til 12,5 prósent en athygli vekur að þeir eru lagðir á með vísan til löggjafar gegn vinnuþrælkun. Það er að segja, Ban...
Vaxtamunur eykst um hálft prósentustig
📅 24.07.2026 👁️ 1
Vaxtamunur eykst um hálft prósentustig
Vaxtamunur eykst um hálft prósentustig Lands­bank­inn jók hagn­að sinn um næst­um 4 millj­arða á milli ára. „Upp­gjör bank­ans á fyrri hluta þessa árs...
France orders evacuation of Cap Ferret peninsula as hundreds flee wildfires
📅 24.07.2026 👁️ 1
France orders evacuation of Cap Ferret peninsula as hundreds flee wildfires
The fire has raged in the region for several days with officials on Friday morning saying it had continued to progress overnight.
Tens of thousands evacuated from France's Cap Ferret peninsula as wildfires spread
📅 24.07.2026 👁️ 0
Tens of thousands evacuated from France's Cap Ferret peninsula as wildfires spread
The fire has raged in the region for several days with officials now ordering the evacuation of the entire Cap Ferret peninsula.
„Ef við fáum enga ferða­menn, verðum við að skjóta hundana“ - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
„Ef við fáum enga ferða­menn, verðum við að skjóta hundana“ - Vísir
Þetta segir Mike Nicolaisen, eigandi og framkvæmdastjóri Arctic Wonderland Tours, Hotel Angmagssalik og Hotel Kulusuk á Austurgrænlandi. Hann segir ák...