Umferðarslys varð í gærkvöld eða nótt þegar bíll og mótorhjól rákust saman. Annar ökumaðurinn hlaut minniháttar áverka, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er tilgreint hvenær eða hvar slysið átti sér stað en það var í umdæmi lögreglustöðvar 4 sem sinnir Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ.
Lögregla hafði afskipti af nokkrum vegna ölvunar og ósæmilegrar hegðunar í miðborginni. Málin voru ýmist afgreidd á vettvangi eða viðkomandi gistu fangageymslur lögreglunnar.
Lögregla sinnti einnig útkalli vegna slyss á rafrafhlaupahjóli. Einn hlaut minni háttar áverka eftir slysið.