Í tilkynningu segir að leiðnimælingar segi til um magn jarðhitavatns í ám og há gildi bendi til þess að jarðhitaleki sé í gangi líkt og var þann 19. ágúst síðastliðinn. Vatnshæð hafi þó ekki hækkað samhliða aukinni leiðni en ekki sé hægt að útiloka að slíkt gerist þegar fram líða stundir.
„Hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl,“ segir í tilkynningunni.
Mikil gasmengun fylgir þessum jarðhitaleka að þessu sinni, en Veðurstofan er með gasmæli við Láguhvola sem eru um 2 km frá jökuljaðri Kötlujökuls. Í nótt mældist aukning í brennisteinsvetni (H2S) og er það nú komið yfir heilsuverndarmörk.
„Því er varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðarinn. Á svæðinu er hægur vindur eða jafnvel logn svo gas mun safnast fyrir í lægðum í landslagi sem getur verið mjög varhugavert fyrir ferðalanga á svæðinu. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax,“ segir að lokum í tilkynningu.