Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar.
„Rigning af og til á austanverðu landinu. Bjart með köflum vestanlands, en stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti yfirleitt 9 til 15 stig,
Á morgun verður suðaustan 8-13 m/s austantil, en annars hægari breytileg átt. Rigning eða súld af og til, en lengst af þurrt á Norðausturlandi eftir hádegi. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag gera spár ráð fyrir austlægum áttum. Skúrir sunnanlands, en lengst af þurrt norðantil framan af degi, en skúrir á stöku stað eftir hádegi. Hiti 11 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.“