Í dag verður hæg breytileg átt á landinu. Austantil verður þokusúld eða dálítil rigning með hita frá 3 stigum til 8. Úrkomulítið verður annars staðar en stöku skúrir sunnanlands. Hitinn verður á bilinu 7 til 16 stig.
Á morgun verður áfram hægur vindur. Það má reikna með súld eða þokulofti með köflum á Norður- og Austurlandi. Þurrt verður í öðrum landshlutum en líkur eru á stöku síðdegisskúrum, einkum inn til landsins. Hitinn verður á bilinu 7 til 16 stig, og verður mildast vestanlands.