Þrír viðburðir helgaðir Hildi Guðnadóttur, tónlist hennar og áhrifavöldum verða haldnir á Listahátíð í Reykjavík um helgina. Á laugardag frumflytur hún verkið Where to From í Silfurbergi í Hörpu, sem hún lýsir sem hljóðdagbók.
„Það eru kannski persónulegustu tónleikarnir, segir Hildur í samtali við Kastljós. Tilurð verksins var þegar hún leit yfir farin veg, en slétt tuttugu ár eru liðin frá því að hún gaf út sína fyrstu sólóplötu.
„Mér fannst áhugavert að skoða hvernig tónlist kemur til mín. Ég tók eftir að ég hafði haldið eins konar hljóðdagbók, ekki meðvitað heldur til að frelsa mig frá tónlist sem er rosalega þrálát. Oft sem ég tónlist og geymi hana. Verk sem ég er að vinna núna hefur lifað með mér í tíu ár. Ég leyfi tónlist að taka þann tíma sem hún þarf.“
Það er skammt stórra högga á milli hjá Hildi. Strax eftir Listahátíð fer hún til Amsterdam með Sinfóníuhljómsveit Íslands og dvelur þar í mánuð. Í framhaldinu semur hún tónlist fyrir leikritið Electra/Persona sem Benedict Andrews setur upp í National Theatre með þeim Cate Blanchett og Ninu Hoss í aðalhlutverkum, en báðar léku þær í kvikmyndinni Tár, sem Hildur samdi tónlistina fyrir.
„Á sama tíma er ég að gera tvær bíómyndir, eina svona töffaramynd með Austin Butler. Og svo er ég að byrja í The Bell Jar með Billie Eilish, sem er að leika í sinni fyrstu bíómynd.“
Bell Jar, eða Glerhjálmurinn í íslenskri þýðingu, er leikstýrt af hinni kanadísku Söruh Polley. Myndin byggir á samnefndri bók Sylviu Plath og er oft nefnd sem ein áhrifamesta skáldsaga 20. aldar.
Í samtali við Kastljós ræðir Hildur sköpunarferli sitt, aukna áherslu á eigin tónsmíðar eftir tíu ára hlé, áhrif Óskarsverðlaunanna á ferilinn og lykilinn að hlúa að neistanum undir miklu álagi. Horfa má á viðtalið hér að ofan.