Marius Borg Høiby, sonur Mette-Maritar krónprinsessunnar norsku, fær ekki lausn úr gæsluvarðhaldi sínu, sem hann situr í fram að dómsuppkvaðningu í máli hans um miðjan mánuðinn, til að vera hjá móður sinni í alvarlegum veikindum sem hún glímir við.
„Við bjuggumst við að þarna ríkti meiri skilningur,“ segir Peter Sekulic verjandi Høiby við norska ríkisútvarpið NRK en lögreglan í Ósló er ósveigjanleg í þeim dómi sínum að lífshættulegt ástand móðurinnar sé engin ástæða til að sleppa Høiby út sem nú bíður dóms í refsimáli þar sem ákæruatriðin eru ein 40.
Sekulic segir synjunina koma verulega á óvart auk þess sem lögregla hefur einnig tekið fyrir að Høiby fái nokkrar upplýsingar frá læknum Ríkissjúkrahússins um stöðu mála hjá móður hans en gæsluvarðhaldið var úrskurðað með bréfa- og heimsóknabanni sem almennt er við slíka úrskurði í Noregi.
„Hann vill mjög gjarnan fá að vera með fjölskyldu sinni,“ segir verjandinn en Oda Karterud ákæruvaldsfulltrúi lögreglu segir að lögregla hafi tekið ákvörðun og Høiby verði ekki látinn laus á meðan lögregla fái nokkru að ráða þar um.
Málið fer hins vegar fyrir Héraðsdóm Óslóar til endanlegrar samþykktar eða synjunar.