Tveimur starfsmönnum vatnsaflsvirkjunar í Nepal var í nótt bjargað á lífi úr göngum eftir hin hrikalegu hamfaraflóð sem riðu yfir svæðið á dögunum.Björgunarmenn lýsa því sem kraftaverki að mennirnir hafi fundist á lífi, en fram að þessu hafði enginn þeirra starfsmanna sem lokuðust inni fundist á lífi.Mennirnir heita Sanjay Shah, þrítugur verkstjóri, og Kabir Maharjan, 45 ára yfirmaður. Þeir voru inni í göngum við Trishuli 3A-vatnsaflsvirkjunina þegar gríðarleg flóðbylgja reið yfir svæðið þann 26. ágúst síðastliðinn.
Heyrðu daufa rödd úr göngunum: Klukkustund síðar gerðist kraftaverkið - Sjáðu myndbandið