Ferran Torres, hetja Spánverja í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, virðist ekki hafa látið þá gagnrýni sem hann fékk á sig vegna húfu sinnar angra sig.
Torres vakti mikla athygli þegar hann bar rauða húfu með áletruninni „Make Spain Great Again“ í sigurgöngu spænska landsliðsins í Madríd. Áletrunin vísar augljóslega til slagorðs Donalds Trump Bandaríkjaforseta, „Make America Great Again“. Slagorðið er einnig einkennisorð VOX flokksins á Spáni.
Húfan vakti hörð viðbrögð meðal spænskra vinstrimanna og fjölmiðla sem töldu hana fela í sér skýr pólitísk skilaboð.
Torres hefur hins vegar hvorki beðist afsökunar né tekið húfuna niður. Þvert á móti birti hann fleiri myndir frá hátíðarhöldunum þar sem húfan var áberandi.
„Við erum konungarnir! Þvílík geðveiki!“ skrifaði Torres við myndirnar.
Somos los reyessssss! 🌎 Vaya locura! pic.twitter.com/ezedAdX9BN
— Ferran Torres (@FerranTorres20) July 21, 2026
Skoraði sigurmarkið gegn Argentínu
Spánn tryggði sér sinn annan heimsmeistaratitil með 1–0 sigri á Argentínu eftir framlengdan leik í úrslitunum í New Jersey.
Torres skoraði eina mark leiksins og varð þar með þjóðhetja á Spáni.
Hvíta húsið blandaði sér í umræðuna
Opinber samfélagsmiðlareikningur Hvíta hússins deildi einnig myndbandi af Torres með húfuna og skrifaði:
„Allir vilja taka þátt í hreyfingunni.“
Fjölmargir svöruðu færslunni og fullyrtu að Torres hefði í raun verið að gera grín að Trump og MAGA hreyfingunni en ekki lýsa yfir stuðningi við hana, sem hlýtur þó að teljast ólíklegt í ljósi þess að setningin, þýdd yfir á spænsku, er einnig slagorð VOX flokksins á Spáni.
Torres hefur einnig verið gagnrýninn á forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, ekki síst vegna viðbragða stjórnvalda við flóðunum hræðilegu í Valencia héraði, en Torres er fæddur og uppalinn í Valencia.
Hann var með þeim fyrstu á svæðið eftir flóðin og var virkur í hjálparstarfi þar sem hann útdeildi mat til nauðstaddra.

Torres hefur sjálfur ekki útskýrt merkinguna en virðist ekki hafa miklar áhyggjur af viðbrögðunum sem gjörningur hans hefur sannarlega vakið.