Prins Edward, sem er hertoginn af Edingborg og hertogaynjan Sophie, eru stödd í Lissabon í Portúgal. Hjónin hafa notið veðurblíðu og gestrisni enda er Lissabon ein af þessum töfrandi borgum Evrópu sem fólk fær þráhyggju fyrir. Og vill helst heimsækja aftur og aftur.
Heimsókn hertogahjónanna af Edinborg var ekki tilefnislaus. Þau fóru í heimsóknina vegna 640 ára afmælis Windsor-sáttmálans sem er elsta stjórnmálabandalag heims sem er enn í gildi.
Hertogahjónin skoðuðu Lissabon, fóru í ferð með einum af hinum sögufrægu sporvögnum sem einkenna borgina. Þau afhjúpuðu upprunaleg eintök af enskum og portúgölskum eintökum Windsor-sáttmálans og fóru í garðveislu í sendiherrabústaðnum. Svona eins og fólk gerir.
Það sem vakti hinsvegar athygli var hvað hertogaynjan var smart í tauinu.
Hún klæddist ljósum síðum og sumarlegum kjól sem fór henni einstaklega vel. Kjóllinn er frá Suzannah London sem er breskt tískuhús sem hefur hannað og saumað mikið af fatnaði á kóngafólk og fleiri fyrirmenni. Kjóll hertogaynjunnar er úr kremhvítu hreinu silki með prenti. Prentmynstrið var þróað í samstarfi við listakonuna og ljósmyndarann Rachel Levy. Grunnliturinn er ferskur fílabeinshvítur sem er skreyttur líflegu grænu smára- og blómamynstri. Efnið var ofið í vefnaðarverksmiðju á Ítalíu. Kjóllinn byggir á hinu vinsæla sniði Gabriella-silkikjólsins. Kjóllinn er með teygjufellingum undir brjóstum og á ermastúfum, sem vísa til upprunalegrar hönnunar frá fjórða áratug síðustu aldar. Pilsið er sniðið á ská og fellur í gólfsídd og eru ermarnar í fullri lengd.
Kjóllinn er fóðraður með ítölsku habotai-silki frá undirbrjóstasaumi niður að faldi og er með ósýnilegum rennilás að aftan sem auðveldar að klæðast honum.
Auðvelt er að para kjólinn við mjúka prjónapeysu og lágbotna skó ef hann er notaður hversdags en svo má endilega fara í háa hæla og setja á sig hatt ef tilefni er fyrir slíkt.
Í tísku í 25 ár!
Suzannah Crabb, eigandi tískuhússins, hefur starfað í tískuheiminum í meira en tuttugu og fimm ár. Hún er hönnuður og stílisti og hefur næmt auga fyrir því sem verður móðins í framtíðinni. Hún vill hafa sniðin sígild og klæðileg og efnin þurfa að vera vönduð. Silki, ull og bómull eru í forgrunni hjá þessari heimskonu sem vill hafa fólk almennilega búið. Í rúmlega áraug hefur Crabb séð um klæðaburð meðlima bresku konungsfjölskyldunnar. Hún hefur líka klætt stjörnur á boð við Helen Mirren, Emmu Watson og Oliviu Colman.
Nýlega saumaði hún kápukjól á Katrínu prinsessu af Wales og svo hefur hún sérsaumað nokkrar flíkur á hertogaynjuna Sophie í gegnum tíðina.
Á heimasíðu Suzannah er að finna ýmist góss sem íslenskar hversdagsdrottningar gætu nauðsynlega þurft að eiga. Eins og til dæmis röndóttan kjól þar sem hægt er að fá hatt og tösku í stíl. Það væri nú eitthvað að mæta þannig í boð. Nú eða aðsniðinn kjól með púffermum og slaufu að aftan.







