Tólf skemmtiferðaskip leggja leið sína til Seyðisfjarðar í vikunni en með tilheyrandi álagi í höfninni í bænum. Starfsmenn hennar hafa í gríni vísað til vikunnar sem „hell week“ eða helvítisvikunnar.
Þetta segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, en að hennar sögn er dagurinn í dag stærsti dagur vikunnar. Fjögur skip hafa komið til hafnar og fjölmennasta skipið flytur allt að 930 farþega.
„Norrænan kemur vikulega en núna eru líka tólf skemmtiferðaskip að stoppa hér. Það verður enginn frídagur fyrir rekstraraðila þar sem þetta er ein stærsta vikan hjá okkur í bókunum og nú þurfa allir að vera á tánum til að allt gangi upp,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Enginn frídagur
Dagmar bendir á að skipin stoppi mislengi, sum aðeins fram yfir hádegi en önnur yfir nótt.
„Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að fá inn þennan hóp ferðamanna. Skemmtiferðaskipin eru grunnuppistaðan í ferðamannastraumnum hingað og farþegarnir nýta svo innviði okkar, hvort sem það eru veitingastaðir, gistiþjónusta eða ferðaþjónustuaðilar á svæðinu,“ segir hún.
Hún bendir á að nafnið „hell week“ geti verið villandi þar sem bæjarbúar séu alls ekki ósáttir með straum skipanna.
„Þetta var bara grín hjá nokkrum strákum sem vinna á höfninni. Það verður lítið um pásur hjá þeim í vikunni, en við horfum alls ekki á þetta í neikvæðri merkingu.“

