Sterkur matur á sér dyggan hóp aðdáenda, enda er eitthvað við chili og heit krydd sem fær bragðlaukana til að vakna til lífsins. Fyrir þá sem vilja meiri hita á diskinn höfum við tekið saman heitustu og vinsælustu uppskriftirnar okkar frá upphafi. Þær munu færa eldhúsinu kraft, hita og alvöru stemningu, með hæfilegum skammti af tárum og svita fyrir þá sem vilja taka þær alla leið.
Heitustu uppskriftirnar okkar frá upphafi - MBL.IS