Heitavatnslaust er á stóru svæði í Kópavogi, frá Smiðjuvegi að Hamraborg.
Fyrstu bilunarinnar varð vart í gærkvöld þegar heitt vatn fór að leka upp á yfirborðið austarlega í bænum. Bilun varð á heitavatnslögnum við Skemmuveg, Nýbýlaveg, Digranesveg og í nærliggjandi götum.
Á þriðja tímanum í nótt var búið að hleypa á vatni víðast hvar og áfram var unnið að viðgerð. Hún hefur þó ekki enn klárast og í morgun varð ljóst að áhrifasvæði lokunarinnar var mun stærra en í fyrstu var talið.
Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir að verið sé að rannsaka hvað veldur heitavatnsleysinu.
Nokkuð hefur verið um bilanir á þessum slóðum en ekki er ljóst hvort þær tengist heitavatnsleysinu í nótt og í dag.
Uppfærðar upplýsingar um stöðuna má finna á vef Veitna eftir því sem staðan skýrist.