Eftir að Suður-Kóreumenn sökuðu Norður-Kóreu um að bera ábyrgð á jarðsprengjunum, sem er brot gegn vopnahléssamkomulagi ríkjanna, sendi Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un, út yfirlýsingu þar sem hún sparaði ekki stóru orðin.
Meðal annars kallaði hún ráðamenn í Suður-Kóreu glæpamenn og kvartaði yfir því að hermenn Suður-Kóreu hefðu ítrekað skotið aðvörunarskotum nærri hermönnum Norður-Kóreu. Þá sagði hún að verið væri að skoða að auka viðbúnað á landamærunum og bæta árásagetu þar. Auk þess yrði mögulega byrjað að básúna aftur áróður yfir landamærin með stórum hátölurum.
Í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu segir að viðvörunarskot til að vara hermenn frá Norður-Kóreu við því að fara inn á hlutlausa svæðið milli ríkjanna og þvinga þá sem hafa farið inn á það til að snúa við, séu lögmæt varnarviðbrögð.
„Ef Norður-Kórea notar lögmætar ráðstafanir okkar sem yfirskin fyrir frekari ögranir munum við refsa henni af fullri hörku,“ sagði ráðuneytið, samkvæmt frétt Reuters.
Enn frekar voru Norður-Kóreumenn hvattir til að hætta grunnlausum kröfum sínum, hætta að senda hermenn inn á hlutlausa svæðið milli ríkjanna og að opna aftur á uppbyggileg samskipti ríkjanna á milli.
Ráðuneytið fordæmdi einnig ummæli Kim You Jong og sagði þau til þess fallin að auka spennuna milli ríkjanna enn frekar.
Sagði hermönnum að bregðast við ögrunum af festu
Yonhap-fréttaveitan segir að Jin Young Sung, formaður herforingjaráðs Suður-Kóreu, hafi í morgun heimsótt hersveit á landamærunum. Þar sagði hann hermönnum að bregðast af festu við hvers kyns ögrunum Norður-Kóreumanna.
Þá sagði hann stjórnendum á svæðinu að auka viðbragðsstig við hlutlausa svæðið. Talsmaður ráðuneytisins vildi ekki útskýra nánar hvað fælist í því í samtali við blaðamenn í dag.
Heimildarmaður Yonhap segir þó að meðal annars geti þessi skipun falið í sér að bæta slóða og vegi til að auðvelda hermönnum að bregðast við ef eitthvað gerist á svæðinu. Þá geti einnig staðið til að bæta eftirlit með hlutlausa svæðinu með því að setja upp eftirlitsstöðvar og myndavélar.
Samskipti Norður- og Suður-Kóreu þykja ekki góð um þessar mundir, þrátt fyrir yfirlýst markmið Lee Jae Myung, forseta Suður-Kóreu, um að bæta þau samskipti.
Norður-Kóreumenn hafa komið fyrir fleiri jarðsprengjum, gaddavír og skriðdrekatálmum sín megin við landamærin að undanförnu en þeir hafa þá yfirlýstu stefnu að rjúfa alfarið tengslin við Suður-Kóreu.
Yfirvöld í Suður-Kóreu segja að allt að sjö þúsund verkamenn hafi verið sendir að landamærunum á þessu ári, þar sem þeir hafa unnið við að víggirða þau frekar. Þá hafa Suður-Kóreumenn greint um fimmtíu tilfelli þar sem hermenn frá Norður-Kóreu hafa farið inn á og jafnvel yfir hlutlausa svæðið.