Þýsk stjórnvöld hafa opinberlega sakað Rússa um misheppnaða drónaárás á Leipzig-Halle flugvöllinn. Úkraínskt flutningaflugfélag er með aðalstöðvar sínar þar og mikið af hergögnum og aðstoð til Úkraínu fer um flugvöllinn. Rússar segja Þjóðverja hafa komið sönnunargögnum fyrir. Margir hafa lýst drónaárásinni sem hryðjuverki.
Mögulegar mótaðgerðir ræddar
Utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja þinguðu á Írlandi á miðvikudag og þar voru svokallaðar fjölþáttaárásir Rússa mikið til umræðu. Evrópusamband undirbýr 22. refsipakka gegn Rússlandi sem á að ná til meira en fimmtán hundruð fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Fréttaskýrendur hafa bent á að hugsanlega verði gripið til harðari aðgerða gegn skuggaflota Rússa sem þeir nota til að flytja út olíu.
Danskir bændur mótmæla
Danska þingið greiðir í dag atkvæði um lagafrumvarp sem takmarkar áburðarnotkun. Bændur eru æfir vegna breytinganna og hafa efnt til fjölmennra mótmæla og keyrt á traktorum að Kristjánsborg og einnig að háskólanum í Árósum. Bændur ásaka ríkisstjórnina um brot ástjórnarskránni með lagabreytingunum.
Bændaforystan vill að gildistöku laganna verði frestað og segir að ekki hafi verið lagt mat á afleiðingar lagasetningarinnar fyrir danskan landbúnað.
Lífvana haf
Ástæðan fyrir þessum lagabreytingum er að hafið víða í kringum Danmörku, einkum í fjörðum, er nánast lífvana vegna þess að þar er ekkert súrefni og fiskur, krabbar og aðrar lífverur í hafinu hafa hreinlega drepist eða flúið. Súrefnisskorturinn er vegna köfnunarefnis í áburði bænda sem berst út í sjó. Vísindamenn hafa bent á þetta í mörg ár en það er fyrst á síðustu misserum sem stjórnmálamenn hafa verið reiðubúnir að hlusta og gera eitthvað í málinu og það náðist samkomulag í tíð síðustu ríkisstjórnar mið- og vinstriflokka um lagafrumvarpið sem verður til afgreiðslu í dag.
Mótmæltu við háskólann í Árósum
Forystumenn bænda viðurkenna að köfnunarefni úr áburði ber ábyrgð á ástandi hafsins en það gera ekki allir bændur og einhverjir tugir þeirra mótmæltu á dráttarvélum sínum við háskólann í Árósum en þar er til húsa stofnunin sem hefur rannsakað ástand hafsins mest. Bændaforystan segir að reglur um áburðarnotkun séu hertar um of og og þær kippi fótunum undan búrekstri margra.
Formaður í vanda
Troels Lund Poulsen, formaður Venstre, er í miklum vanda vegna þess að stór hluti flokksmanna er andvígur lagabreytingunum. Venstre, sem er systurflokkur Framsóknarflokksins, á rætur að rekja til landbúnaðarsamfélagsins. Fimm af átján þingmönnum flokksins lýstu því yfir fyrir atkvæðagreiðslu um frumvarpið að þau ætluðu að greiða atkvæði gegn því þó að flokkurinn hefði átt þátt í samningu frumvarpsins undir forystu Troels Lund Poulsens. Flokkurinn er því klofinn og raddir hafa heyrst um að rétt væri að skipta um formann.
Fyrsti fyrirspurnartíminn
Rætt var um fyrsta fyrirspurnartíma Andy Burnhams sem forsætisráðherra Bretlands. Kemi Badenoch, leiðtogi Íhaldsflokksins, saumaði hart að Burnham og spurði hann meðal annars hvort hann gæti nefnt eina beiðni um útgjöld sem hann hefði hafnað. Burnham svaraði að nauðsynlegt væri að lækka útgjöld til velferðarmála og beindi því til Badenoch að þau gætu sameiginlega reynt að ná tökum á vandamálunum frekar en standa í pólitísku hnútukasti. Badenoch sagði að forsætisráðherra yrði að vera leiðtogi, hann væri ekki í vinsældakeppni. Hún spurði hann hvað hann hefði skorið niður og Burnham sagðist hafa skorið niður skatta og uppskar fagnaðarlæti þingmanna Verkamannaflokksins.
Spenna í Svíþjóð
Óvænt spenna er hlaupin í kosningabaráttuna í Svíþjóð, fyrir þremur vikum virtist útlitið vonlítið fyrir ríkisstjórn Ulfs Kristerssons. Þá mældist um tíu prósentustiga munur á flokkunum sem standa að Tidö-stjórninni og stjórnarandstöðunni. Nú er munurinn kominn í 2,6% og allt getur gerst. Frjálslyndi flokkurinn, Liberalerna, virtist dæmdur til að falla út af þingi og ná ekki fjórum prósentum atkvæða sem þarf til að fá menn kjörna. Nú eru þeir komnir í 3,3% og allt getur gerst. Jafnaðarmenn hafa á móti tapað verulega. Síðustu dagar baráttunnar verða mjög spennandi.