Haustgildi, bókmenntahátíð bókabæjanna austanfjalls, verður haldin um helgina 5. til 6. september á Stokkseyri. Rithöfundar og tónlistarmenn koma fram.„Hátíðin hefur verið haldin seinustu fimm ár á Stokkseyri. Hátíðin er bókmenntahátíð Bókabæjanna austan fjalls og hafa fjölmargir rithöfundar komið og heimsótt Stokkseyri þessa fyrstu helgi í september,“ segir í tilkynningu.Eftirfarandi rithöfundar munu taka þátt að þessu sinni: Nína Ólafsdóttir, Ingi Markússon, Lóa H. Hjálmtýsdóttir, Una Margrét Jónsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Ægir Þór.
Haustgildi haldin um helgina – Jónas Sig og Lóa Hjálmtýsdóttir á meðal þeirra sem fram koma