David Cameron varð forsætisráðherra Bretlands 2010 og flutti venju samkvæmt inn í Downingstræti 10 í Lundúnum ásamt eiginkonu sinni Samönthu Sheffield og börnum þeirra fjórum. Þau voru búin að búa í ár í forsætisráðherrabústaðnum þegar ákveðið var að fjölskyldan fengi sér gæludýr. Kötturinn Larry varð fyrir valinu, þriggja ára villiköttur sem fjölskyldan fann í dýraathvarfi. Þetta byrjar því eins og fallegt ævintýri, flækingsköttur sem komst til æðstu metorða. Og hann varð strax áhrifavaldur. Umsóknir um ættleiðingar flækingskatta ruku upp eftir að Larry flutti til forsætisráðherrahjónanna. Síðan þá hefur Larry staðið þar vaktina, í heil fimmtán ár.
Rottur, mýs og jafnvel dúfur eru ekki óhultar á yfirráðasvæði Larry. Og þangað eru fleiri óvelkomnir. Fyrir nokkrum árum náðist myndskeið af Larry setja upp kryppu og hvæsa í átt að Palmerston nokkrum.
Sá er reyndar ferfættur kollegi Larrys, músaveiðari utanríkisráðuneytis Bretlands. Músaveiðara forsætisráðherrabústaðarins fannst greinilega ekki mikið koma til starfsbróður síns í utanríkisráðuneytinu og var lítt spenntur fyrir samvinnu.
Vinsælli en Starmer og Sunak
Það eru ekki bara samskipti ráðuneytiskatta sem hafa verið róstusöm í Bretlandi undanfarin ár. Larry hefur lifað og starfað í og við Downingstræti 10 í fimmtán ár og á þeim tíma hafa hvorki fleiri né færri en sex forsætisráðherrar búið þar í lengri eða skemmri tíma. Fyrst David Cameron, þá Theresa May, svo Boris Johnson, Liz Truss, Rishi Sunak og svo nú Keir Starmer.
Brexit og fylgistap hefur engin áhrif á Larry ólíkt húsbændum hans. Enda á hann meira fylgi að fagna oft á tíðum. Í fylgismælingu fyrir kosningarnar 2024 kom í ljós í einni könnun að Larry naut meira fylgis en bæði Sunak og Starmer sem þá börðust um embættið.
Þegn þjóðarinnar
Larry, eða reyndar einhver í hans nafni, er með nokkuð virkan aðgang á X, þar sem hann stundar beittar stjórnmálaskýringar innanlands sem utan.
En þó Larry virðist ekki fara í manngreinarálit, eða kæra sig með öllu kollóttan um hver er hvað, þá ber hann sjálfur titil. Hann er músaveiðari breska forsætisráðuneytisins. Þannig útskýrði Cameron í sínum síðasta fyrirspurnatíma í breska þinginu að Larry væri þegn þjóðarinnar, og fylgdi embættinu en ekki fjölskyldunni.
Starfsskyldur kortlagðar
Því þó hann hafi upphaflega verið fenginn í Downingstræti sem gæludýr fylgdi það sögunni að hann væri lunkinn músaveiðari. Vart hafði verið við mýs og rottur í forsætisráðherrabústaðnum og Larry sýndi það strax að hann stóð undir nafnbótinni og var öflugur meindýraveiðari.
Rottur og mýs gátu ekki lengur valsað þar um að vild. Seinni ár fer þó reyndar það orðspor af söguhetjunni okkar að honum þyki orðið enn betra að leggja sig í tíma og ótíma heldur en að hlaupa á eftir músum.
Sérstaklega er minnst á starfsskyldur Larry á heimasíðu Downingstrætis. Þar segir:
Larry ver deginum í að taka á móti gestum hússins, skoða öryggiskerfi og prófa antíkhúsgögn með það í huga að finna besta staðinn til að leggja sig. Dagleg verkefni hans eru sömuleiðis að kortleggja og vinna bug á músagangi í húsinu. Larry segir það mál enn á skipulagsstigi.
Hann hefur oft stolið senunni, tróð sér til dæmis inn á ljósmynd sem tekin var 2019 þegar bandarísku forsetahjónin, Donald og Melania Trump stilltu sér upp með Theresu May og eiginmanni hennar Philip. Volodomyr Zelensky, Barack Obama, Ursula von der Leyen og Anthony Albanese eru meðal þeirra sem hafa náðarsamlegast fengið að klappa kettinum, sem þó lét sér að vanda fátt um finnast.