Samningurinn var undirritaður á þriðjudaginn og gildir til loka kjörtímabilsins. Föst dagvinnulaun eru samkvæmt samningnum 1.804.114 krónur á mánuði. Þau taka breytingum í samræmi við hækkun taxta í reglum um launakjör og starfsaðstæður bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ dagsettum 25. ágúst 2022.
Í launum bæjarstjóra er innifalin greiðsla fyrir nefndastörf og setu í bæjarstjórn og ekki er greitt aukalega fyrir nefndastörf eða setu í vinnuhópum á vegum Akureyrarbæjar.
Bæjarstjóri fær greitt stjórnendaálag sem nemur 45% af mánaðarlaunum. Í samningnum segir að álagið sé þóknun fyrir unna yfirvinnu og allt áreiti utan dagvinnutíma, undirbúning, ferðatíma, móttökur gesta og hvað annað vinnuframlag sem til fellur utan dagvinnutíma. Greitt er 13,04% orlof á stjórnendaálag.
Launin nema því alls 2.615.965 krónum. Ekki er greitt sérstaklega fyrir setu á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs eða öðrum fundum fastanefnda Akureyrarbæjar. Orlof er 30 virkir dagar á ári.
Bæjarstjóri fær greitt fyrir akstur í þágu vinnuveitanda samkvæmt skráningu og Akureyrarbær greiðir ferðakostnað á ferðalögum á vegum bæjarins. Einnig greiðir bærinn kostnað vegna notkunar á farsíma, líf- og slysatryggingu og leggur til farsíma og fartölvu til notkunar í störfum sínum.