Harmageddon
Sjálfstæðisflokkurinn telur að leiðin upp úr sögulegu fylgishruni sé að ráðast gegn Miðflokki og mála hann upp sem óstjórntækan öfgaflokk. Þannig telur flokkurinn sig geta endurheimt stöðu sína sem fjöldahreifing skynsamra hægri manna. Einnig ræðum við í þessum þætti um skynsama stefnu NoBorders samtakanna um að íslenskt velferðarkerfi eigi að bjóða öll velkomin, rekstur Icelandair sem er ekki samkeppnishæfur með dýrustu laun í heimi og uppgjöf framhaldsskóla við að reyna kenna ungu fólki íslenskar heimsbókmenntir. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift