Miklar annir voru hjá lögreglunni í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld og nótt. Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi segir verkefni lögreglu hafa verið óvenjumörg undanfarna daga.
Tveir einstaklingar voru handteknir í miðbænum vegna alvarlegrar líkamsárásar þar sem hníf var beitt. Sá sem ráðist var á var fluttur á bráðamóttöku en gerendurnir voru vistaðir í fangaklefum og dúsa þar enn að sögn Guðmundar.
Hann kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið sem væri á borði rannsóknardeildar.
Árásin náðist á upptöku
Þá var lögreglan kölluð út að Naustinni á miðnætti, en þar hafði karlmaður ráðist á annan fyrir utan skemmtistaðinn Gaukinn. Árásarmaðurinn flúði vettvang áður en lögreglu bar að garði.
Brotaþoli er maður á þrítugsaldri og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
Guðmundur kveðst ekki vita hvert ástand hans sé en segir áverkana ekki hafa verið lífshættulega. Lögregla hefur ekki haft uppi á árásarmanninum en fer nú yfir myndefni af árásinni sem náðist á upptöku í öryggismyndavél.
Vopn og fíkniefni
Þá handtók lögregla einnig mann á þrítugsaldri fyrir utan spilasalinn Mónakó á Laugavegi. Hann var handtekinn fyrir vopnalagabrot og vörslu og meðferð fíkniefna. Guðmundur segir manninn hafa verið í annarlegu ástandi og að lögregla þekki vel til hans.
Maðurinn var með kylfu og vasahníf í fórum sínum auk steypustyrktarjárns sem hann hafði útbúið handfang á. Guðmundur segir honum hafa verið sleppt úr haldi en að hann megi eiga von á sekt eða ákæru fyrir vopnaburð.
Þá hafi lögregla gert efni sem maðurinn var með á sér upptæk og sent þau til efnagreiningar. Magn þeirra hafi ekki verið stórt og þau líklegast verið ætluð til neyslu.