Halldór Ingi enn ófundinn

Halldór Ingi Emilsson
Mynd: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni, 43 ára, og óskar eftir upplýsingum um ferðir hans eða dvalarstað.
Lýst var eftir Halldóri þann 15. október og er enn óskað eftir upplýsingum sem kunna að leiða til þess að hann finnist. Lögreglan sendi einnig frá sér tilkynningu 2. október og vildi þá ná tali af honum en þá sendi lögreglan ekki mynd með.
Halldór er grannvaxinn og um 183 sentímetrar á hæð. Hann er brúnhærður og með skegg.
Lögregla biðlar til þeirra sem kunna að hafa séð Halldór eða geta veitt upplýsingar um ferðir hans að hafa tafarlaust samband.