Haraldur Noregskonungur verður jarðsunginn í dómkirkju Óslóar þann 9. september klukkan eitt að staðartíma. Alþingi verður sett á þann 8. september. Forseti Íslands mun setja þingið venju samkvæmt og heldur Halla til Noregs, ásamt Birni, eftir þingsetningu.
Auk Höllu verða ýmsir þjóðarleiðtogar viðstaddir útförina, meðal annars Frank-Walter Steinmeier forseti Þýskalands, konungshjón Danmerkur og konungshjón Hollands.
Kista konungs verður fyrst flutt úr sal konungshallarinnar yfir í kapellu hallarinnar þar sem almenningur getur komið og vottað virðingu sína.
Sjá einnig: Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september
Þaðan heldur hún svo í dómkirkju Óslóar þar sem sjálf athöfnin fer fram. Eftir hana verður kistan flutt til kirkjunnar í Akurshúskastala þar sem fjölskyldan heldur minningarstund og verður hann lagður til hinstu hvílu í konunglegu grafarhvelfingunni.
Hákon áttundi Noregskonungur sór í dag embættiseið á norska Stórþinginu og varð því formlega þjóðarleiðtogi Noregs.