54 prósent landsmanna eru ánægð með störf Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Maskínu.
Í síðustu mælingu, sem gerð var á fyrsta ársfjórðungi ársins, voru 45 prósent ánægð með störf hennar. Könnunin fór fram 7. til 12. maí 2026 og voru svarendur 1.015 talsins.
Ef kannanirnar tvær sem gerðar hafa verið á árinu eru lagðar saman kemur í ljós að 49% landsmanna eru ánægðir með störf hennar samanborið við 52% allt árið 2025 og 48% árið 2024. Að sama skapi segjast 17 prósent landsmanna vera óánægðir með störf hennar, samanborið við 14 prósent árið 2025 og 11 prósent árið 2024.
Tekið skal fram að óánægja með störf Höllu minnkar á milli kannanna og ánægja eykst. Sögðust 20 prósent landsmanna vera óánægðir með störf hennar í fyrri könnuninni á þessu ári en 13 prósent í þeirri seinni sem gerð var í maí. Að sama skapi eykst ánægja með störf hennar á milli kannanna, 45% áður á móti 54% nú.
Konur eru ánægðari með störf Höllu en karlar, eða 64% á móti 43,8% hjá körlum. Þá eru kjósendur Viðreisnar ánægðastir með störf hennar (67,5%) en kjósendur Miðflokksins (29,6%) og VG (29,3%) eru óánægðastir.
Athyglisvert er að bera niðurstöðurnar saman við til dæmis Guðna Th. Jóhannesson sem naut mikilla vinsælda í embætti. Ánægja með hans störf fór aldrei niður fyrir 71% á þeim átta árum sem hann gegndi embætti.