„Mér finnst fyrst og fremst gott að það sé að koma upp úr kössunum og við séum að ná að ljúka þessum kosningum. Það er líka búið að vera mjög mikið málefnastarf í gangi á þinginu og ég hef meira svona verið með augun á því. Þetta er bara góður stuðningur og mér þykir vænt um hann,“ sagði Halla Gunnarsdóttir, nýkjörinn fyrsti varaforseti ASÍ, í viðtali við Hólmfríði Dagnýju Friðjónsdóttur fréttamann.
Georg Páll Skúlason var kosinn forseti Alþýðusambandsins.
„Ég bara styð hann í þeim verkefnum sem fram undan eru hjá honum. Þau eru ærin. Svo verður kjörin ný miðstjórn líka og við þurfum að koma út af þessu þingi samhent og láta til okkar taka.“
Halla Gunnarsdóttir verður næsti fyrsti varaforseti Alþýðusambands Íslands. Hún tekur við embættinu af Hjördísi Þóru Sigurþórsdóttur sem var fyrsti varaforseti á síðasta kjörtímabili.
Fundurinn er enn í gangi og fjölmiðlar hafa ekki fengið aðgang að fundarsalnum síðan úrslitin voru kynnt. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hlaut Halla 62,7% atkvæða. Það hefur þó ekki fengist staðfest.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gáfu báðar kost á sér í embætti fyrsta varaforseta. Halla hafði betur.
Halla var þriðji varaforseti á síðasta kjörtímabili. Sólveig Anna var annar varaforseti.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, var kosinn forseti Alþýðusambands Íslands. Hann hlaut 56,2% atkvæða. Arnaldur Grétarsson, mótframbjóðandi hans, hlaut 43,8%.
Georg Páll er átjándi forseti ASÍ frá upphafi.
Georg Páll kvaðst hrærður yfir kjörinu. Hann sagðist myndu leggja áherslu á góða samvinnu innan miðstjórnar sambandsins og við aðildarfélög þess. Miklar deilur hafa verið síðustu daga en Georg Páll sagði ákveðinn sáttatón hafa heyrst í gær og sagði mikilvægt að fólk gæti áfram unnið saman innan sambandsins.
Arnaldur sagði úrslitin vera vonbrigði fyrir sig en óskaði Georgi Páli góðs gengis.
Finnbjörn A. Hermannsson, fráfarandi forseti, sagðist sáttur við niðurstöður kjörsins, tveir öflugir menn hefðu verið í boði.
Fram undan er kjör þriggja varaforseta og fimmtán manna miðstjórnar. Við ljúkum þessari fréttavakt en segjum fréttir af öðrum kosningum þegar úrslitin liggja fyrir.
„Við bjuggum við það lúxusvandamál að þarna komu tveir mjög hæfir kandídatar og það þurfti auðvitað að kjósa á milli þeirra og annar þeirra vann. Ég er bara mjög sáttur við þá niðurstöðu,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, fráfarandi forseti ASÍ, um formannskjörið.
Finnbjörn var fenginn til að taka að sér embætti forseta ASÍ fyrir þremur og hálfu ári þegar miklar deilur voru í sambandinu.
„Þetta er deila sem er utan við Alþýðusambandið í sjálfu sér. Þetta er deila á milli tveggja fylkinga, eða tveggja einstaklinga, sem keyra tvö stærstu félögin. Það er búið að gera hinar ýmsu tilraunir til þess að lægja öldurnar. Ég tel að við höfum getað unnið mjög vel saman en svo blossar þetta upp af og til. Reyndin er sú að lífið er í beinni útsendingu og það magnar alltaf upp allar deilur þannig að það gengur svolítið illa að ná því niður. Ég vona að nýkjörinn forseti nái að lægja þetta.“
Finnbjörn segir það alltaf hafa áhrif ef fólk getur ekki gengið í takt. Hann segir deilurnar þó ekki hafa skaðað sambandið og að stéttarfélögin hafi gert sína samninga og nú síðast framlengt samninga.
Hann segir að nota eigi tímabilið fram að næstu kjarasamningum til að stilla saman strengi. „Eins og ég er búinn að vera að tönglast á á þinginu þá erum við miklu, miklu sterkari saman og það eru svo stór verkefni sem bíða okkar til framtíðar sem eru sameiginleg öllum svo við getum ekki farið sundruð í þau verkefni.“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur talað um að félag sitt segi sig hugsanlega úr Alþýðusambandinu.
„Auðvitað hef ég áhyggjur af því og það væri aldeilis ekki gott, hvorki fyrir Alþýðusambandið né Eflingu held ég,“ segir Georg Páll Skúlason, nýkjörinn forseti ASÍ. Hann telur að ákveðinn sáttatónn hafi heyrst í gær og síðan náði tillaga um fækkun varaforseta ekki fram að ganga. Hann vonar að það verði til þess að fólk geti unnið áfram saman innan ASÍ.
Georg Páll segir þó ástæðu til að skoða skipulag sambandsins.
Georg Páll Skúlason, nýkjörinn forseti Alþýðusambands Íslands, segist hrærður yfir kjörinu og segir það afskaplega mikinn heiður að vera valinn í embættið. Hann átti allan tímann von á að hafa sigur en treysti sér ekki til að spá fyrir um prósentur.
Georg Páll hlaut 56,2% atkvæða.
„Þingið kemur auðvitað með heilmikið veganesti inn í starf Alþýðusambandsins, myndar stefnuna og áherslumálin. Það mun verða það sem verður mikilvægast. Svo legg ég mjög mikla áherslu á góða samvinnu innan miðstjórnar og við stéttarfélögin og aðildarfélögin.“
Mikil ólga hefur verið innan sambandsins og reynt að lægja öldur.
Georg Páll segir samstarf og samvinnu mjög mikilvæg. Hann segir að leggja verði áherslu á málefnin frekar en persónur. Fram undan er kjör þriggja varaforseta og fimmtán í miðstjórn.
„Það er kannski skiljanlegt að fólk setji á oddinn hvar það vilji vera í röðinni en það er mikilvægast að fá þær allar þrjár inn í starfið og að það verði rödd frá hverju stóru félagi og samtökunum.“
Georg Páll hlaut 56,2% atkvæða en Arnaldur Grétarsson 43,8%.
Arnaldur Grétarsson sem beið lægri hlut í forsetakjörinu, sagði að niðurstaðan væri vonbrigði. Hann hefði boðað nýja sýn með auknum sýnileika Alþýðusambandsins og auknu samtali við félögin.
„Ég get ekkert gefið mér um það,“ sagði Arnaldur spurður hvort það tækist að lægja öldurnar en lýsti trú á að Georgi Páli tækist það.
Georg Páll Skúlason, nýkjörinn forseti, sagði það vera afskaplega mikinn heiður að vera kjörinn í embættið. Hann hét því að vinna af festu að hagsmunum alls launafólks.
Georg Páll sagði að forseti gæti ekki verið eyland heldur byggði starf ASÍ á störfum forystu sambandsins. Hann vísaði til þess að fram undan væri kjör þriggja varaforseta sambandsins.
Hann þakkaði Arnaldi Grétarssyni fyrir baráttuna í forsetakjörinu og þakkaði Finnbirni A. Hermannssyni, fráfarandi forseta, fyrir hans störf. Báðir hlutu mikið lófaklapp. Hið sama átti við þegar Georg Páll gekk í pontu sem nýkjörinn forseti.
Nýr forseti hvatti ASÍ-félaga til að standa saman launafólki til heilla.
Georg Páll Skúlason er nýr forseti Alþýðusambands Íslands. Hann hafði betur í forsetakjöri þar sem hann atti kappi við Arnald Grétarsson.
Talningu er lokið og úrslit verða kynnt hvað úr hverju. Áður en að því kemur fer þingheimur þó yfir ályktun sem liggur fyrir þinginu.
Góðan dag og velkomin í fréttavakt um forsetakjörið í Alþýðusambandi Íslands.
Baráttan um forsetaembættið stóð milli Arnars Grétarssonar, sem hefur starfað við markaðssetningu og áður sem samfélagsmiðlasérfræðingur hjá ASÍ, og Georgs Páls Skúlasonar, formanns GRAFÍU – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum.
Búið er að greiða atkvæði og verið er að telja þau.
Finnbjörn Hermannsson lætur af embætti. Hann varð forseti Alþýðusambands Íslands á aukaþingi í apríl 2023. Hann var þá hættur afskiptum af verkalýðsmálum en fenginn til að snúa aftur í von um að honum tækist að lægja öldur innan sambandsins. Hálfu ári áður hafði mistekist að kjósa forystu sambandsins vegna deilna á þingi þess sem leiddu til þess að frambjóðendur til helstu embætta drógu sig í hlé.