Skálholtshátíð var formlega sett klukkan 11:00 í morgun að viðstöddu fjölmenni og svo heldur dagskráin áfram í allan dag og fram á kvöld. Á morgun verður líka fjölbreytt dagskrá, meðal annars hátíðarmessa klukkan tvö þar sem biskup Íslands prédikar og klukkan fjögur verður hátíðardagskrá í Skálholtsdómkirkju þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra flytur hátíðarræðu.
Dagskrá Skálholtshátíðar er stýrt af séra Sólveigu Láru Guðmundsdóttur, fyrrverandi vígslubiskupi á Hólum í Hjaltadal.
„Skálholtshátíð er árleg hátíð sem haldin er sem næst Þorláksmessu á sumri, sem er 20. júlí og þessi hátíð hefur verið haldin svona formlega í 70 ár núna. Hún var afar stór 1956 en þá voru hér á milli sjö og átta þúsund manns sem komu á hátíðina,” segir Sólveig Lára.
Síðan hefur hún verið haldin árlega en kirkjan í Skálholti var vígð 1963. Altarismyndin í kirkjunni þykir einstaklega falleg en hún er eftir Nínu Tryggvadóttur.
„Við erum að halda upp á það núna að það eru sextíu ár síðan myndin kom í kirkjuna og því verður hún í öndvegi á þessari hátíð núna,” segir Sólveig Lára og bætir við.
„Skálholtshátíð er ein af stærstu hátíðum kirkjunnar. Það er alltaf gott veður eins og núna, það er glampandi sól og við bara vonum að sem flestir komi og njóti hátíðarinnar”.
Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar