Mótmælendunum sem röskuðu þingfundi fyrir skemmstu var vísað út úr Alþingishúsinu án aðkomu lögreglu þar sem þeir héldu mótmælum sínum áfram að sögn Sverris Jónssonar, skrifstofustjóra Alþingis.
„Það er náttúrulega bannað að raska friðhelgi þingfunda svo þeim var vísað af þingpöllum og forseti gerði hlé á þingfundi, þeim var bara vísað út úr húsinu og þau halda sínu áfram hér eins og þau hafa rétt til,“ segir Sverrir í samtali við mbl.is.
Mótmælendurnir hafi verið fjórir talsins.
Leitað á fólkinu
Hann segir að ekki liggi fyrir hvort lögreglunni verði blandað í málið.
Öryggisverðir hafi leitað á fólkinu áður en það gekk inn í salinn en ekki fundið flauturnar sem viðkomandi báru og nýttu svo til mótmælanna.