Hákon krónprins Noregs kemur degi fyrr heim frá Japan en áætlað var vegna þess að heilsu eiginkonu hans Mette-Marit krónprinsessu hefur hrakað. Dóttir þeirra Ingiríður Alexandra ætlar einnig að koma heim frá Ástralíu.
Hákon ræddi við fjölmiðla í Tókýó í morgun og greindi frá því að hann ætlaði að stytta opinbera heimsókn sína til Japan um einn dag. „Ég bið alla sem ég hefði átt að hitta síðasta daginn afsökunar. Mér finnst mikilvægt að fara heim og vera hjá Mette. Ég kýs að gera það því henni líður ekki vel.“
Árið 2018 greindist Mette-Marit með lungnatrefjun, pulmonary fibrosis. Í desember varð hún alvarlega veik og heilsu hennar er aftur að hraka núna. „Þetta er sjúkdómur sem getur þróast og því miður ef hún orðin verri,“ segir Hákon krónprins.
Ingríður Alexandara, fyrsta barn þeirra, er í námi í Ástralíu. Hákon segir að hún ætli að fara heim til Noregs fljótlega, hún vilji vera með móður sinni.
Hákon er fremstur í erfðaröð norsku krúnunnar og Mette-Marit krónprinsessa er því næsta drottning Noregs. Haraldur Noregskonungur er 88 ára og hefur glímt við heilsubrest um nokkra hríð. Hann tók við sem konungur árið 1991 eftir fráfall Ólafs fimmta, föður hans.
Hákon og Mette-Marit gengu í hjónaband 2001 og eiga tvö börn, Ingiríði Alexöndru prinsessu, fædd 2004, og Sverri Magnús prins, fæddur 2005.
Fyrir átti Mette Marit soninn Marius Borg Høiby. Hann var ákærður í alls 39 ákæruliðum, þar á meðal fyrir fjórar nauðganir. Hann var einnig ákærður fyrir önnur kynferðisbrot, fíkniefnabrot og ofbeldi. Réttarhöldunum yfir honum lauk í mars og dómur verður kveðinn upp mánudaginn 15. júní.