Hákarl varð manni að bana undan ströndum Vestur-Ástralíu í dag. Fjórir hafa látist í hákarlaárásum það sem af er árinu. Aðeins tvær vikur eru frá þeirri síðustu.
Að sögn lögreglu var maðurinn við skutulsveiðar þegar hákarlinn réðst á hann.
Ástralskir vísindamenn telja að flökkumynstur hákarla sé að breytast, ekki síst vegna hækkandi sjávarhita. Það kunni að skýra aukna tíðni hákarlaárása.
Búið er að uppfæra fréttina og fyrirsögn.