Hafnaði að loka réttarhöldum yfir Írisi Helgu
Kröfu Írisar Helgu Jónatansdóttur um að loka réttarhöldum yfir sér var hafnað af dómara. Hún hefur verið ákærð fyrir fjölmörg afbrot, meðal annars umsáturseinelti og að dreifa ósannindum um nafngreinda einstaklinga.
Dómari við Héraðsdóm Reykjaness hafnaði kröfu lögmanns Írisar Helgu Jónatansdóttur sem hefur verið ákærð fyrir umsáturseinelti, brot á barnaverndarlögum, rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir og ærumeiðandi aðdróttanir. Farið var fram á lokuð réttarhöld við þingfestingu málsins í síðustu viku þar sem Íris Helga neitaði jafnframt alfarið sök í þeim 68 ákæruliðum sem voru listaðir upp í sautján blaðsíðna ákæru á hendur henni. Þá var annar maður ákærður fyrir hlutdeild í einu brotanna. Hann hefur neitað sök og segist hafa verið blekktur.
Ekki liggur fyrir hvort lögmaður Írisar Helgu muni kæra úrskurðinn til Landsréttar en allir réttargæslumennirnir og saksóknari höfnuðu því alfarið að þinghaldinu yrði lokað. Íris Helga er meðal annars ákærð fyrir að dreifa ósannindum um nafngreinda einstaklinga á samfélagsmiðlum undir nafnleynd auk þess sem henni er gefið að sök að hafa skilið eftir krukku sem í átti að …